Fuglar eru í óðaönn að koma ungum sínum á legg enda styttist í að sumir þeirra fljúgi til vetrarstöðva sinna.
Eyþór Ingi Jónsson tók einstakt myndefni af fuglum og sendi fréttastofu RÚV á dögunum. Í myndbandinu má sjá erni, lunda, hettumáva, hrafnsunga, súlur, rjúpur, smyril , önd, sandlóur og þórshana.