Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra kynnti fyrir nokkrum dögum að einkunnir í grunnskólum skuli gefnar í tölustöfum í stað bókstafa til að námsmat verði skýrara og samræmdara.
Þessi áform taka gildi við lok 10. bekkjar næsta vor og kennarar gagnrýna að hafa ekki verið með í ráðum.
Við köllum það nú ekki samráð...
„Við köllum það nú ekki samráð þó við höfum fengið tilkynningar og upplýsingar um að ákveðin áform væru í bígerð,“ segir Mjöll Matthíasdóttir formaður Félags grunnskólakennara.
Hún segir að þessi breyting hafi ýmis áhrif á skólastarf og skipulag þess, kennarar eru mættir til starfa og kennsla hefst eftir rúma viku.
Ekki einföld aðgerð
„Menn þurfa t.d. að bregðast hratt við í skólunum. Skólastjórnendum er t.d. uppálagt að setja upp innleiðingarteymi í hverjum einasta skóla sem menn höfðu líklega ekki gert ráð fyrir í mönnun og skipulagi. Þannig að eitthvað þarf að stokka upp,“ segir Mjöll.
Aðalnámskrá grunnskóla byggir á svokölluðum hæfniviðmiðum og bókstafaeinkunnirnar áttu að endurspegla þau.
„Að færa það yfir í talnakvarða er kannski ekki einföld aðgerð. Vonandi verður góður stuðningur við skólasamfélagið við að endurhanna þetta, það er það sem ég hef kannski helst áhyggjur af.“
Víða mjög þungt hljóð
Sá stuðningur ætti, að sögn Mjallar að koma frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, MSS, undirstofnun Menntamálaráðuneytisins.
„En í þeirri stofnun er bara gríðarlegur niðurskurður, eins og víða hjá hinu opinbera þessar vikurnar. Og ég hef áhyggjur af því að þetta verði þungt verkefni. það hefði þurft að setja innspýtingu í mönnum og fjármagn í að standa vel við bakið á svona breytingu.“
Hvað finnst grunnskólakennurum?
„Það er víða mjög þungt hljóðið. Þetta kemur ansi bratt að og mjög margt í þessu sem er ekki búið að útfæra.“
Ég er ekkert hissa þó það sé urgur í fólki. Þegar svona tilkynning kemur, eiginlega eins og þruma úr heiðskíru lofti, rétt fyrir upphaf skólastarfs - það setur ekki góðan anda í fólk. Þetta er til að skapa óvissu og óöryggi.
Þetta hefur legið í loftinu nokkurn tíma og ráðherra sagst vilja breyta einkunnagjöf, hefði kennarastéttin ekki mátt búast við þessu?
„Að breyta bara yfir í talnakvarða er dálítið bratt - þetta hefði þurft lengra ferli,“ segir Mjöll.