Einn var með stungusár og annar var með sár á hendi eftir slagsmál utandyra við Valhallarbraut í Reykjanesbæ í nótt.
Í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum kemur fram að lögreglan fékk beiðni um skjóta aðstoð vegna slagsmálanna. Þegar lögregla kom á vettvang var fjöldi manns samankomin utandyra og fljótlega var óskað eftir frekari aðstoð viðbragðsaðila þar sem tilkynnt var um hnífaburð.
Er ekki í lífshættu
Sérsveit ríkislögreglustjóra kom til aðstoðar á vettvang við leit að gerendum.
Þrír voru handteknir á vettvangi og bíða yfirheyrslu. Sá sem var stunginn er á spítala og er ekki í lífshættu. Lögreglan á Suðurnesjum mun fara fram á gæsluvarðhald í dag í þágu rannsóknar málsins, sem er á frumstigi.