Að minnsta kosti einn er látinn og hundrað slasaðir eftir kröftugan jarðskjálfta í Japan. Fjöldi fólks er fastur í verslunarmiðstöð sem hrundi að hluta í skjálftanum.
Jarðskjálftinn átti upptök sín um tuttugu kílómetra suður af Kumamoto, stærstu borg Kyushu, sem er þriðja stærsta eyja Japans. Hann reið yfir rétt fyrir klukkan hálf fimm síðdegis að staðartíma, klukkan hálf átta í morgun að íslenskum tíma.
Flóðbylgjuviðvörun var gefin út en var dregin til baka innan nokkurra klukkutíma. Bandaríska jarðvísindastofnunin sagði skjálftann upphaflega 7,1 að stærð en breytti því síðan í 6,8.
Um þrjú hundruð þúsund manns var skipað að yfirgefa heimili sín og leita skjóls í neyðarskýlum. Tugir þúsunda eru án rafmagns og rúmlega sextíu eftirskjálftar hafa mælst.
Fjöldi vega, brúa og bygginga skemmdist í jarðskjálftanum. Einn fannst látinn í húsi sem hrundi og sprenging varð í verslunarmiðstöð í Kumamoto, sem hrundi að hluta, stuttu eftir jarðskjálftann.
Slökkvilið óttast að margir séu fastir þar inni og lögregla segir að tíu hið minnsta sé saknað. Björgunaraðgerðir eru í gangi.
Fjölda fólks er einnig saknað eftir að skorsteinn hrundi í pappírsverksmiðju í Kumamoto. Tveimur hefur verið bjargað úr það og er ástand þeirra sagt alvarlegt en níu er enn saknað.