Matvælastofnun sektaði sauðfjárbónda um 286 þúsund krónur í maí fyrir að skera tvær kindur sínar á háls án þess að svipta þær meðvitund fyrst, eins og ber að gera.
Í sama mánuði var nautgripabóndi kærður til lögreglu vegna ábendingar sem MAST barst um að kýr og kvígur hefðu þurft að sæta barsmíðum af hans hálfu.
Í yfirliti yfir stjórnvaldsákvarðanir MAST í dýravelferðarmálum undanfarna fjóra mánuði má finna fjölmargar ákvarðanir sem lúta að vörslusviptingu gælu- og húsdýra auk sekta vegna vanrækslu og dagsekta til að knýja fram úrbætur á aðbúnaði og umhirðu dýra.
Fór í frí án þess að fá pössun fyrir kettlinga og læðu
Til að mynda var eigandi fjölmargra hunda, katta, fugla og skrautfiska sviptur vörslu á þeim öllum. MAST taldi viðkomandi engan veginn ráða við að annast dýrin með fullnægjandi hætti.
Þá var kattaeigandi sem geymdi ketti í búri utandyra án fóðurs og vatns sviptur vörslu kattanna í apríl og sektaður um 162 þúsund krónur.
Annar kattaeigandi var vörslusviptur og sektaður um 144 þúsund krónur eftir að hann fór í vikufrí án þess að fá pössun fyrir læðu og kettlinga hennar og skorti dýrin bæði vatn og fóður á meðan.
Vanrækti fóðrun og brynningu stórrar hrosshjarðar
Tveir hestamenn voru sviptir vörslu á hrossum sínum, meðal annars umráðamaður stórrar hrosshjarðar sem vanrækti fóðrun þeirra og brynningu. Viðkomandi hafði ekki heldur hugað að sjúkum og horuðum hrossum.
Þá var sauðfjárbóndi sviptur vörslu alls sauðfjár vegna endurtekinna brota á velferð fjárins. Hann fékk sjö mánuði til að ráðstafa fénu frá sér sjálfur.
Annar bóndi hlaut dagsektir í maí til að knýja fram úrbætur á aðbúnaði og umhirðu sauðfjár og nautgripa. Hann var sviptur vörslu nautgripanna vegna endurtekinna brota og hefur fram að 1. september til að ráðstafa fénu sjálfur.