Ein helsta stjarna breskra stjórnmála sökuð um að taka málstað hryðjuverkamanns - DV

Ein helsta stjarna breskra stjórnmála sökuð um að taka málstað hryðjuverkamanns - DV

Zack Polanski leiðtogi flokks Græningja í Bretlandi hefur vakið mikla athygli þar í landi undanfarin misseri. Hefur hann verið mjög fyrirferðarmikill og farið með himinskautum á hinu pólitíska sviði með þeim árangri að fylgi flokksins, í skoðanakönnunum, hefur verið í sögulegum hæðum. Polanski hefur hins vegar hlotið talsverða gagnrýni fyrir viðbrögð sín við hnífsstunguárás sem gerð var í Golders Green í norðurhluta London í gær. Árásin er rannsökuð sem hryðjuverk en tveir karlmenn sem eru Gyðingar voru stungnir. Báðir lifðu af en annar þeirra særðist alvarlega. Annar mannanna var stunginn þegar hann var nýkominn út úr samkunduhúsi Gyðinga. Talið er ljóst að mennirnir hafi orðið fyrir árásinni aðeins vegna þess að þeir eru Gyðingar. Lögregla yfirbugaði og afvopnaði árásarmanninn en einhverjir gagnrýndu handtökuna eftir að myndbönd af henni fóru í dreifingu og sögðu lögregluna hafa beitt of mikilli hörku. Polanski deildi einni slíkri færslu á X og hefur vegna þess verið sakaður um að taka málstað árásarmannins.

Græningjar

Polanski er 43 ára og tók við sem flokksleiðtogi í september á síðasta ári. Hann hefur verið fyrirferðarmikill í breskri stjórnmálaumræðu og m.a. lagt áherslu á að stemma verði stigu við ójöfnuði í landinu og að hægri flokkarnir saki innflytjendur að ósekju um að vera helsta vandamál Bretlands. Polanski segir þvert á móti auðjöfra sem hirði allan auðinn og forði sér undan skattgreiðslum vera helsta vandamálið. Hann hefur mikið talað um háan framfærslukostnað og kallað eftir aðgerðum til að bæta lífsskilyrði alþýðufólks í Bretlandi. Polanski á ekki sæti á breska þinginu en situr í borgarstjórn London.

Græningjar hafa síðan þeir komu til sögunnar fengið lítið fylgi í þingkosningum og þar til í síðustu kosningum höfðu þeir mest fengið eitt þingsæti. Í kosningunum 2024 fengu þeir hins vegar mesta fylgið hingað til, 6,7 prósent atkvæða á landsvísu og 4 þingsæti en 650 þingmenn sitja á breska þinginu. Síðan Polanski tók við hafa Græningjar hins vegar verið að mælast með á bilinu 13-21 prósent, á landsvísu í skoðanakönnunum.

Golders Green er hverfi í norðurhluta London en um helmingur íbúa þar eru Gyðingar. Árásarmaðurinn heitir Essa Suleimaner, er ættaður frá Sómalíu og er 45 ára gamall. Hann flutti til Bretlands á barnsaldri og er breskur ríkisborgari. Hann hafði áður verið undir smásjá yfirvalda vegna grunns um að hann aðhylltist öfgahyggju og hyggðist fremja hryðjuverk en rannsókn var á endanum hætt. Til rannsóknar er hvort hann hafi framið árásina að undirlagi íranskra samtaka.

Þetta er alls ekki fyrsta árásin sem beinst hefur sérstaklega að Gyðingum í Bretlandi undanfarið. Breskir Gyðingar óttast um sinn hag og hafa rætt það opinskátt við breska fjölmiðla að þeir telji ekki óhætt fyrir þá að búa lengur í Bretlandi.

Keir Starmer forsætisráðherra hlaut óblíðar móttökur þegar hann heimsótti Golders Green fyrr í dag og var sakaður um að gera ekkert vegna þeirra árása og hatursglæpa sem beinst hafa að breskum Gyðingum.

Spark

Á myndböndum sem birst hafa á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum má sjá tvo lögreglumenn og vegfaranda yfirbuga árásarmanninn og afvopna hann. Annar lögreglumannanna sést skjóta úr rafbyssu sinni á Suleimaner sem fellur á endanum í götuna en rígheldur í hnífinn. Annar lögreglumannanna sést sparka í höfuð Suleimaner á meðan kollegi hans og vegfarandinn reyna að ná af honum hnífnum sem á endanum tókst.

Á samfélagmiðlum bar á gagnrýni á þessar aðferðir lögreglumannsins og Zach Polanski hefur deilt einni slíkri færslu á X. Í þeirri færslu var fullyrt að Suleimaner glímdi við geðræn veikindi.

Fyrir þessa deilingu hefur Polanski verið töluvert gagnrýndur til að mynda í fjölmiðlum og af pólitískum andstæðingum. Bent hefur verið í því samhengi á að Suleimaner hafi streist á móti, reynt að ráðast að lögreglumönnunum og verið með bakpoka meðferðis sem ekki hafi verið vitað á þeim tímapunkti hvort að innihéldi sprengiefni. Þingmenn úr Íhaldsflokknum og Verkamannaflokknum segja það dæmigerða hegðun hjá Polanski að taka afstöðu með hryðjuverkamanni sem hati Gyðinga en sýna lögreglumönnunum sem stöðvuðu hann fyrirlitningu.

Polanski er raunar sjálfur Gyðingur en hann hefur í þó nokkurn tíma verið sakaður um að leyfa gyðingahatri að grassera innan Græningja. Nokkuð hefur verið um að fólk hafi verið rekið úr flokknum fyrir að lýsa opinberlega yfir hatri gagnvart Gyðingum.

Á samfélagsmiðlum flokksins hefur árásin í Golders Green verið fordæmd og sögð sprottin af gyðingahatri. Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér síðdegis í dag sagði Polanski að árásin hefði beinst sérstaklega að Gyðingum og stjórnmálamenn úr öllum flokkum yrðu að vinna saman við að vernda breska Gyðinga en pólitískir andstæðingar hans nýttu hins vegar tækifærið til árása á hann. Hann sagðist sjálfur verða fyrir gyðingahatri á hverjum degi. Polanski leggur hins vegar áherslu á að hertar aðgerðir til verndar Gyðingum í Bretlandi megi ekki skerða rétt fólks til að mótmæla hernaði Bandaríkjanna og Ísrael í Miðausturlöndum.

 

 

#hryðjuverkamanns #stjórnmála #stjarna #breskra #málstað


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/4/30/ein-helsta-stjarna-breskra-stjornmala-sokud-um-ad-taka-malstad-hrydjuverkamanns/

📰 Aðrar fréttir

MAYDAY WEATHER: Mostly sunny Friday with slight rise in temperatures
📅 01.05.2026 06:11:00 👁️ 1

MAYDAY WEATHER: Mostly sunny Friday with slight rise in temperatures

#temperatures#weather#mayday#mostly#friday
Báðar deildir þingsins samþykkja að milda refsingu Bolsonaros
📅 01.05.2026 06:00:22 👁️ 1

Báðar deildir þingsins samþykkja að milda refsingu Bolsonaros

#bolsonaros#samþykkja#þingsins#refsingu#deildir
Nína Richter skrifar: Íslenska svefnleikhúsið - DV
📅 01.05.2026 06:00:07 👁️ 1

Nína Richter skrifar: Íslenska svefnleikhúsið - DV

#svefnleikhúsið#íslenska#richter#skrifar#nína
Fertiliser boss says Iran war puts 10 billion meals a week at risk
📅 01.05.2026 05:51:18 👁️ 1

Fertiliser boss says Iran war puts 10 billion meals a week at risk

#fertiliser#billion#meals#boss#says
Tveir karlmenn teknir af lífi í gær — annar beið 50 ár á dauðadeild
📅 01.05.2026 05:15:14 👁️ 1

Tveir karlmenn teknir af lífi í gær — annar beið 50 ár á dauðadeild

#dauðadeild#karlmenn#teknir#tveir#annar
British couple jailed in Iran: 'We're likely to be here for a long time'
📅 01.05.2026 05:04:08 👁️ 1

British couple jailed in Iran: 'We're likely to be here for a long time'

#british#couple#jailed#likely#iran
Bandaríkin setja um 92 milljónir olíutunna af varabirgðum á markað
📅 01.05.2026 04:40:42 👁️ 1

Bandaríkin setja um 92 milljónir olíutunna af varabirgðum á markað

#varabirgðum#bandaríkin#milljónir#olíutunna#markað
Bandaríska sendiráðið í Líbanon hvetur leiðtoga landsins til fundar við forsætisráðherra Ísraels
📅 01.05.2026 04:00:38 👁️ 0

Bandaríska sendiráðið í Líbanon hvetur leiðtoga landsins til fundar við forsætisráðherra Ísraels

#forsætisráðherra#bandaríska#sendiráðið#leiðtoga#landsins
UK terrorism threat level raised after Golders Green attack
📅 01.05.2026 03:41:25 👁️ 1

UK terrorism threat level raised after Golders Green attack

#terrorism#golders#threat#raised#attack
Bandaríkin segja stríðsátökum við Íran lokið
📅 01.05.2026 03:19:53 👁️ 1

Bandaríkin segja stríðsátökum við Íran lokið

#stríðsátökum#bandaríkin#segja#lokið#íran
Pavel Talankin's Oscar for Mr Nobody Against Putin goes missing on NY flight
📅 01.05.2026 03:02:21 👁️ 1

Pavel Talankin's Oscar for Mr Nobody Against Putin goes missing on NY flight

#talankin#against#missing#nobody#flight
New footage shows how Trump dinner gunman charged through security in four seconds
📅 01.05.2026 02:39:06 👁️ 1

New footage shows how Trump dinner gunman charged through security in four seconds

#security#footage#charged#through#seconds
Vestmannaeyjaferjurnar sigla til Þorlákshafnar um helgina en ekki í Landeyjahöfn
📅 01.05.2026 02:38:16 👁️ 0

Vestmannaeyjaferjurnar sigla til Þorlákshafnar um helgina en ekki í Landeyjahöfn

#vestmannaeyjaferjurnar#þorlákshafnar#landeyjahöfn#helgina#sigla
Trump signs bill ending government shutdown
📅 01.05.2026 02:21:47 👁️ 1

Trump signs bill ending government shutdown

#government#shutdown#ending#trump#signs
King arrives in Bermuda after ending US state visit with trip to small town America
📅 01.05.2026 02:19:06 👁️ 1

King arrives in Bermuda after ending US state visit with trip to small town America

#arrives#bermuda#america#ending#after
Tveir unglingar drepnir í drónaárás í Belgorod
📅 01.05.2026 01:25:51 👁️ 1

Tveir unglingar drepnir í drónaárás í Belgorod

#unglingar#drónaárás#belgorod#drepnir#tveir
Jón Gnarr kveðst ekki hafa fengið greitt fyrir grín í Vikunni — hvorki fyrr né síðar
📅 01.05.2026 00:34:56 👁️ 1

Jón Gnarr kveðst ekki hafa fengið greitt fyrir grín í Vikunni — hvorki fyrr né síðar

#vikunni#kveðst#fengið#greitt#hvorki
Hlé gert á þingfundum fram yfir sveitarstjórnarkosningar
📅 01.05.2026 00:11:48 👁️ 1

Hlé gert á þingfundum fram yfir sveitarstjórnarkosningar

#sveitarstjórnarkosningar#þingfundum#gert#fram#yfir
Chip shops sell cheap catfish as 'traditional fish and chips'
📅 01.05.2026 00:11:27 👁️ 1

Chip shops sell cheap catfish as 'traditional fish and chips'

#traditional#catfish#shops#cheap#chips
Met chief defends officers in Golders Green attack after Greens criticism
📅 01.05.2026 00:06:25 👁️ 1

Met chief defends officers in Golders Green attack after Greens criticism

#criticism#officers#defends#golders#attack
Safna í sér­stakt sjóherlið á Norður­slóðum - Vísir
📅 01.05.2026 00:02:23 👁️ 1

Safna í sér­stakt sjóherlið á Norður­slóðum - Vísir

#norðurslóðum#sjóherlið#sérstakt#safna#vísir
UK should not keep changing prime ministers, warns John Major
📅 30.04.2026 23:44:54 👁️ 0

UK should not keep changing prime ministers, warns John Major

#ministers#changing#should#prime#warns
Katla Ólafsdóttir nýr forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands
📅 30.04.2026 23:12:38 👁️ 1

Katla Ólafsdóttir nýr forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands

#stúdentaráðs#ólafsdóttir#forseti#háskóla#íslands
Mun líklega standa tæpt hvort kjarasamningar haldi í haust
📅 30.04.2026 22:59:13 👁️ 1

Mun líklega standa tæpt hvort kjarasamningar haldi í haust

#kjarasamningar#líklega#standa#hvort#haldi
Flestir treysta Sönnu
📅 30.04.2026 22:54:34 👁️ 1

Flestir treysta Sönnu

#flestir#treysta#sönnu
„Við erum með lengri óska­lista heldur en þetta“ - Vísir
📅 30.04.2026 22:44:47 👁️ 1

„Við erum með lengri óska­lista heldur en þetta“ - Vísir

#óskalista#lengri#heldur#þetta#vísir
Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ - Vísir
📅 30.04.2026 22:15:54 👁️ 1

Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ - Vísir

#hráskinnaleikur#pólitískur#segist#ekkert#fengið
Mesta vegareiði sögunnar: Stakk mann sem gaf ekki stefnuljós - „Ég ætla að berja þig í klessu!“ - DV
📅 30.04.2026 22:00:12 👁️ 0

Mesta vegareiði sögunnar: Stakk mann sem gaf ekki stefnuljós - „Ég ætla að berja þig í klessu!“ - DV

#stefnuljós#vegareiði#sögunnar#klessu#mesta
Jón Gnarr fékk ekki greitt fyrir atriðið eins og fullyrt var í Morgunblaðinu – „Óvönduð blaðamennska“ - DV
📅 30.04.2026 21:47:14 👁️ 1

Jón Gnarr fékk ekki greitt fyrir atriðið eins og fullyrt var í Morgunblaðinu – „Óvönduð blaðamennska“ - DV

#morgunblaðinu#blaðamennska#atriðið#fullyrt#óvönduð
Britney Spears charged in California with driving under influence
📅 30.04.2026 21:46:18 👁️ 1

Britney Spears charged in California with driving under influence

#california#influence#britney#charged#driving
„Hugsanavilla“ að láta vændiskaupendur njóta nafnleyndar
📅 30.04.2026 21:37:47 👁️ 1

„Hugsanavilla“ að láta vændiskaupendur njóta nafnleyndar

#vændiskaupendur#hugsanavilla#nafnleyndar#njóta#láta
'I held down Golders Green suspect,' says volunteer who grabbed his leg
📅 30.04.2026 20:54:50 👁️ 1

'I held down Golders Green suspect,' says volunteer who grabbed his leg

#volunteer#golders#suspect#grabbed#green
Vilja útrýma notkun jarðefnaeldsneytis
📅 30.04.2026 20:52:24 👁️ 1

Vilja útrýma notkun jarðefnaeldsneytis

#jarðefnaeldsneytis#útrýma#notkun#vilja
„Ágætt að stjórnvöld ætli að hafa sérstakt aðhald með olíumarkaðinum“
📅 30.04.2026 20:40:00 👁️ 1

„Ágætt að stjórnvöld ætli að hafa sérstakt aðhald með olíumarkaðinum“

#olíumarkaðinum#stjórnvöld#sérstakt#aðhald#ágætt
Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár - Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar - DV
📅 30.04.2026 20:30:03 👁️ 0

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár - Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar - DV

#sambýlismanns#hæstiréttur#grundvelli#erfðaskrár#hlutdeild
„Við getum endalaust elt en það er eftirspurnin sem drífur“
📅 30.04.2026 20:14:26 👁️ 1

„Við getum endalaust elt en það er eftirspurnin sem drífur“

#eftirspurnin#endalaust#drífur#getum
„Þetta er bara eins og að missa vini sína“ - Vísir
📅 30.04.2026 19:50:45 👁️ 1

„Þetta er bara eins og að missa vini sína“ - Vísir

#þetta#missa#vísir#bara#eins
Andar köldu milli Við­reisnar- og Miðflokksmanna - Vísir
📅 30.04.2026 19:41:57 👁️ 1

Andar köldu milli Við­reisnar- og Miðflokksmanna - Vísir

#miðflokksmanna#viðreisnar#andar#köldu#milli
Þjóðþekktir Íslendingar nafngreindir á vafasamri vefsíðu
📅 30.04.2026 19:06:05 👁️ 0

Þjóðþekktir Íslendingar nafngreindir á vafasamri vefsíðu

#nafngreindir#þjóðþekktir#íslendingar#vafasamri#vefsíðu
US House votes to end partial government shutdown over immigration operations
📅 30.04.2026 19:01:27 👁️ 0

US House votes to end partial government shutdown over immigration operations

#immigration#government#operations#shutdown#partial
Háskólaprófessor: Andstæðingar aðildar hengja sig í algjör smáatriði – drepa innihaldsríkri umræðu á dreif - DV
📅 30.04.2026 19:00:28 👁️ 0

Háskólaprófessor: Andstæðingar aðildar hengja sig í algjör smáatriði – drepa innihaldsríkri umræðu á dreif - DV

#háskólaprófessor#innihaldsríkri#andstæðingar#smáatriði#aðildar
Plymouth WW2 bomb to be blown up as 1,200 homes evacuated
📅 30.04.2026 18:48:46 👁️ 0

Plymouth WW2 bomb to be blown up as 1,200 homes evacuated

#evacuated#plymouth#blown#homes#bomb
Oddvitaumræður í Grindavík
📅 30.04.2026 18:47:18 👁️ 0

Oddvitaumræður í Grindavík

#oddvitaumræður#grindavík
Föst í um­ferð í tæpa fjóra sólar­hringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar - Vísir
📅 30.04.2026 18:33:45 👁️ 0

Föst í um­ferð í tæpa fjóra sólar­hringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar - Vísir

#kostnaðurinn#sólarhringa#milljarðar#hundrað#umferð
Banaslys í Skorradalsvatni - DV
📅 30.04.2026 18:29:43 👁️ 0

Banaslys í Skorradalsvatni - DV

#skorradalsvatni#banaslys
Banaslys í Skorradalsvatni
📅 30.04.2026 18:28:50 👁️ 0

Banaslys í Skorradalsvatni

#skorradalsvatni#banaslys
Bana­slys í Skorra­dals­vatni - Vísir
📅 30.04.2026 18:24:03 👁️ 0

Bana­slys í Skorra­dals­vatni - Vísir

#skorradalsvatni#banaslys#vísir
Glæ­ný könnun gæti varpað ljósi á meiri­hluta­myndun - Vísir
📅 30.04.2026 18:19:43 👁️ 0

Glæ­ný könnun gæti varpað ljósi á meiri­hluta­myndun - Vísir

#meirihlutamyndun#könnun#varpað#glæný#ljósi
Oddvitaumræður í Skagafirði
📅 30.04.2026 18:14:51 👁️ 0

Oddvitaumræður í Skagafirði

#oddvitaumræður#skagafirði
Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leið­beiningar - Vísir
📅 30.04.2026 18:04:53 👁️ 0

Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leið­beiningar - Vísir

#hlaðvarpsstjórnendur#leiðbeiningar#nýjar#vísir