Diljá Mist gagnrýnir íslensk stjórnvöld harðlega:
„Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggjufullir yfir þessu,” segir Diljá Mist í samtali við Vísi. Hún vill reyndar meina að það hafi orðið algjör u-beygja í samskiptum þjóðanna.
„Það er risamál,“ segir Diljá Mist og leggur áherslu á orð sín. „Við virðumst bara dottin út úr öllu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fær bara fundi með einhverjum undirmönnum. Ég spurðist fyrir og það er engin önnur ferð á dagskrá, „hugsanlega í haust“. Meðan þetta er algjört forgangsmál hjá öllum evrópskum leiðtogum, þar með talið norrænum.“
Óformlegt spjall á göngunum
Í fyrirspurnartíma kom fram í svörum Kristrúnar að Trump Bandaríkjaforseti væri mjög meðvitaður um sérstakt samband Bandaríkjanna við Ísland í tengslum við varnarsamninginn og að hann væri enn þá í fullu gildi. Þetta mun hann hafa fullyrt við Kristrúnu. Er hægt að gera betur?
„Þarna er alltaf verið að vísa í eitthvað óformlegt spjall á göngunum, rétt eins og í ESB-umræðunni – það er ekkert fast í hendi.“
En verður ekki að líta til þess að Trump er ekkert allra, svo vægt sé til orða tekið?
„Hahaha? Guðlaugur Þór Þórðarson fyrrverandi utanríkisráðherra tók á móti tveimur utanríkisráðherrum, bæði frá Trump og Biden, auk varaforseta Bandaríkjanna ásamt því sem hann fór nokkrar ferðir út,“ segir Diljá sem var einmitt aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs í ráðherratíð hans.
„Við settum af stað efnahagssamráð við Bandaríkin þegar Trump var forseti og þá var farið að bera á þessari einangrunarstefnu. Það þarf að vinna fyrir þessu. Utanríkisráðherrar og/eða forsætisráðherrar Norðurlandanna hafa allir sinnt þessu mjög vel. Þú þarft að láta vita af þér og hamast í þessu,“ segir Diljá.
Vill bandaríska herstöð á Íslandi
Og Diljá Mist vill ganga lengra:
„Ég ætla að fullyrða að það sé viljandi verið að reka fleyg á milli samstarfs okkar við Bandaríkin, og það er stórhættulegt – þjóðaröryggismál.“
En hvað er íslenski sendiherrann eiginlega að gera þarna úti í Bandaríkjunum?
Diljá Mist segir vinnu hennar erfiða þegar ráðherra er svona óviljugur.
„Þegar ég lagði fram fyrirspurn í upphafi árs þá hafði Þorgerður Katrin einungis farið einu sinni til Bandaríkjanna.“
Diljá Mist rekur þróun mála, Gaza-ráðstefnu og málarekstur með S-Afríku gegn Ísrael.
„Þetta er fókusinn hjá henni auk ESB-daðurs sem Trump hefur sérstakt horn í síðu á.“
En hvað viljum við meira? Bandaríska herstöð á Íslandi?
„Endilega. Það hef ég alltaf sagt. Við viljum auðvitað fríverslunarsamning, sem gæti verið utan seilingar núna en í því eigum við að vinna stöðugt. Það verða pólitíkusar í Bandaríkjunum sem halda áfram eftir Trump. Efnahagssamráðið hefur verið í dvala eftir að við fórum frá skilst mér, það er mjög vont því ekki viljum við lenda í tollum hjá tollaglöðum forseta. Svona til viðbótar við tollana sem ESB er að skella á okkur,“ segir Diljá Mist sem telur Ísland vanrækja öll tengsl við Bandaríkin og það kunni ekki góðri lukku að stýra.