Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins er 18,1 kílói léttari eftir leikfimisátak sem hann fór í. Átakið stóð yfir í 91 dag og skilaði árangri. Hann var 117,3 kíló þegar leikfimisátakið hófst en er nú 99,2 kíló.
„Þetta hefur ekki verið neitt sérstaklega erfitt en ég tók hressilega til í mataræði og hreyfingu.
Þetta er búið að taka 91 dag og markmiðið var að styrkja mig og létta mig um 17,3 kg- 18,0 kg, fara niður fyrir 100 kg,“ segir Jón Pétur. Hann segist hafa nýtt gervigreindina til að létta sig.
„Ég bjó að því að hafa eiginlega alltaf verið í mjög góðu formi. Á þessum 91 degi fór ég á einhverskonar æfingu um það bil 80 sinnum. Sumar voru bara ganga í halla en aðrar erfiðar lyftingaæfingar og allt þar á milli. Ég borðaði svo gott sem ekkert brauð og engin sætindi. Drakk engar hitaeiningar en mokaði í mig harðfiski, bláberjum, kasjúhnetum, ávöxtum, ab mjólk, fiski/kjöti, grænmeti ofl. Á þessum tíma fór ég úr 117,3 kg í 99,2 kg. Ég náði því markmiðinu og aðeins betur en það. Rúmmál 18,1 kg af fitu er um 20 lítrar sem samsvara þessum tveimur 10 lítra brúsum á einni myndanna,“ segir hann.
Hann segist vera miklu betri eftir þetta, bæði líkamlega og andlega og þakkar Gumma þingverði, Diljá Mist Einarsdóttur þingmanni Sjálfstæðisflokksins og Sigga Erni fyrir hvatninguna.
