„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“
Logn, kynsegin femínisti og listamaður, er stofnandi Rauðu regnhlífarinnar sem eru samtök kynlífsverkafólks á Íslandi. Hán ólst að mestu leyti upp á Englandi en flutti aftur heim til Íslands árið 2016. Logn vann við kynlífsvinnu á Englandi og segir að hjá Rauðu regnhlífinni sé unnið út frá skaðaminnkandi hugmyndafræði. Hán segir að lögin eigi að geta náð yfir raunverulegar aðstæður kynlífsverkafólks, þolenda vændis, þolenda mansals og kynferðisofbeldis.
Logn fæddist í Reykjavík og ólst upp fyrstu árin í Fellahverfi í Breiðholti. Hán gekk í Waldorfsskólann í Lækjarbotnum í um eitt og hálft ár en árið 1999, þegar hán var sjö ára, flutti fjölskyldan – foreldrarnir, Logn og eldri systir – til Englands þar sem báðir foreldrar stunduðu háskólanám. „Mér líkaði mjög vel við Waldorfsskólann og ég sé þegar ég lít til baka að ég hef alltaf laðast að óhefðbundnum upplifunum, fólki og aðstæðum.“