„Ég fæddist nefni­lega á enda­lausu breytingar­skeiði“ - Vísir

„Ég fæddist nefni­lega á enda­lausu breytingar­skeiði“ - Vísir

„Ég fæddist nefni­lega á enda­lausu breytingar­skeiði“ - Vísir

Nýlega tók hún alrýmið heima hjá sér í gegn og nú er hún farin að huga að jólunum. Soffía verður gestur á notalegu jólakvöldi Húsgagnahallarinnar fimmtudaginn 5. nóvember, þar sem hún sýnir skemmtilegar hugmyndir að jólaskreytingum og veitir litaráðgjöf fyrir hönd Slippfélagsins.

Það er eitthvað við haustið sem fær okkur til að líta heimilið öðrum augum. Þegar laufin falla af trjánum og skammdegið tekur við verða hlýir litir, mjúk teppi, kertaljós og notaleg lýsing enn mikilvægari. Hjá Soffíu Dögg er þetta árstíð breytinga, enda hefur hún alla tíð haft gaman af því að færa til, prófa nýjar hugmyndir og skapa fallega umgjörð um fjölskyldulífið.

„Það eykst þörfin fyrir hlýleika og kósífíling. Við búum í húsi með stórum gluggum og erum umkringd trjám, þannig að allt virkar svo grænt og fullt yfir sumartímann. En um leið og laufin fara að falla af trjánum finn ég þörf fyrir að gera allt tilbúið fyrir komandi vetur. Svona svolítið eins og íkorni að safna vetrarforðanum,“ segir Soffía.

Þótt heimilið breytist ekki endilega mikið á milli árstíða segir hún smáatriðin geta skipt sköpum. Á sumrin sæki hún frekar í létt efni á borð við hör og bómull, en þegar haustið kemur taki við mýkri og hlýrri áferðir.

„Þá verða efnin meira djúsí, velúr og loðin kósíteppi. Lýsingin skiptir líka höfuðmáli. Ég er nánast aldrei með loftljósin kveikt heldur nota lampa sem hægt er að dimma eftir stemningunni. Svo eru kertin auðvitað ómissandi.“

Mér finnst eins og við séum að færast aftur í átt að persónulegri stíl og meira dúllerí. 

Grænar greinar víkja gjarnan fyrir haustlegum stráum og öðrum skreytingum sem kalla fram notalega vetrarstemningu.

Nýr litur getur gjörbreytt heimilinu

Soffía hefur fylgst með straumum og stefnum í íslenskri heimilishönnun um árabil. Hún segir ákveðnar tískubylgjur alltaf koma og fara, en finnst jafnframt ánægjulegt að sjá fólk verða óhræddara við að skapa persónuleg heimili.

„Við gengum í gegnum gráa tímabilið og erum núna í beige- og brúnum tónum. Mér finnst eins og við séum að færast aftur í átt að persónulegri stíl og meira dúllerí. Skelltu gamla púðanum sem amma saumaði út aftur inn og finndu leið til að láta hann passa við restina af innbúinu.“

Sjálf segist hún kunna best við milda og hlutlausa liti á heimilinu, þótt hún sé óhræddari við litagleðina þegar kemur að klæðnaði.

En þarf að ráðast í miklar framkvæmdir til að breyta yfirbragði heimilisins?

„Auðveld leið til að láta allt líta út fyrir að vera nýtt er auðvitað að mála. Það er eins og allir hlutir breytist við það að fá nýjan bakgrunn. En ef þú ert að mikla það fyrir þér er alveg ótrúlega miklu hægt að breyta með nýrri mottu, öðrum púðum eða jafnvel bara með því að breyta uppstillingunni á borðum.“

Hún leggur áherslu á að breytingarnar þurfi hvorki að vera kostnaðarsamar né umfangsmiklar. Stundum dugi að horfa á það sem fyrir er með nýjum augum.

Tíu ár frá síðustu málningarframkvæmdum

Á heimili Soffíu hefur þó heldur meira verið um að vera að undanförnu. Hún ákvað nýlega að taka alrýmið í gegn, mála veggina og endurnýja hluta af húsgögnum og textíl.

„Það voru komin tíu ár síðan við máluðum síðast alrýmið hjá okkur. Það var málað í litnum Draumagrár og það var hreinlega kominn tími á breytingar. Ég myndi segja að það væri eiginlega nauðsynlegt að mála á sjö til tíu ára fresti.“

Á sama tíma stóð til að skipta um sófasett og fá nýjar gardínur. Það gaf henni kærkomið tækifæri til að endurskoða heildarmyndina.

„Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði,“ segir hún brosandi.

Hún vissi frá upphafi að nýi veggliturinn ætti að vera mildur og hlýr, en með meiri brúnum undirtóni en sá grái sem hafði verið á veggjunum.

Eftir nokkrar vangaveltur varð liturinn Blíður fyrir valinu, nýr litur úr Skreytum hús-litakortinu sem þróað hefur verið í samstarfi við Slippfélagið.

„Ég var fyrst ákveðin í að nota einn af Mjúku-litunum mínum, en liturinn sem varð fyrir valinu fékk nafnið Blíður. Hann er dekkri útgáfa af Mjúkur 1 og er alveg hreint dásamlega fallegur. Hann er fullkominn hingað inn til okkar.“

Soffía fór sér hægt við litavalið og prófaði mismunandi tóna áður en endanleg ákvörðun var tekin. Hún notaði meðal annars striga til að bera saman liti við mismunandi birtuskilyrði.

„Það er snilld að mála litaprufur á striga því þá getur maður fært þær á milli staða meðan maður er að ákveða sig. En ég myndi samt alltaf mæla með að mála líka prufur beint á veggina áður en farið er af stað.“

Hún hafði jafnframt til hliðsjónar prufur af gardínuefninu og púða úr nýja sófasettinu sem hún hafði fundið í Húsgagnahöllinni. „Mér fannst mjög mikilvægt að þetta myndi allt harmonera vel saman.“

Blíður tekur vel utan um mann

Þegar kom að málningunni sjálfri varð Björt frá Slippfélaginu fyrir valinu. Um er að ræða silkimatta innimálningu með 10% gljáa sem auðvelt er að þrífa. Það er ekki síst kostur á heimili þar sem tveir hundar eru hluti af fjölskyldunni.

Soffía segir útkomuna hafa staðist allar væntingar og rúmlega það. 

Ég elska þegar við erum með nýmáluð rými. Það er ein af mínum uppáhaldstilfinningum. Allt verður svo nýtt og ferskt og möguleikarnir virðast endalausir.

Það sem kom henni helst á óvart var hversu mikil áhrif nýi liturinn hafði á rýmið, jafnvel áður en búið var að koma öllum skrautmunum og myndum aftur fyrir.

„Ég er eiginlega mest hissa á að ég er varla búin að festa neitt upp á veggina enn þá. Það er svo merkilegt hvað Blíður-liturinn tekur vel utan um mann í rýminu og fyllir það svo fallega. Ég er alltaf á leiðinni að hengja eitthvað upp, en stundum finnst manni hálfgerð synd að negla í nýmálaða veggina.“

Hún ákvað að fá fagmenn til að sjá um málningarvinnuna og segir það hafa reynst vel. „Bjarki hjá Nýmálað sá um þetta og það var mikil snilld að fá verkið klárað hratt og örugglega. Þeir fá mín bestu meðmæli.“

Blíður er nú í sérstöku uppáhaldi hjá Soffíu. „Hann er svona yngsta barnið og mér finnst hann eitthvað svo fullkominn akkúrat núna.“

Litirnir urðu til heima hjá henni

Samstarf Soffíu og Slippfélagsins á sér langa sögu. Upphafið má rekja til ársins 2012 þegar hún byrjaði að sýna frá heimili sínu og deila hugmyndum um innréttingar og skreytingar.

Heimilið þitt ætti að vera sá staður sem þér líður allra best á og taka utan um þig um leið og þú kemur inn.

Fylgjendur hennar fóru fljótlega að spyrjast fyrir um litina sem hún notaði.

„Ég byrjaði að sýna heiman frá mér árið 2012 og fór strax að fá fyrirspurnir um hvaða lit ég væri að nota hér eða þar. Eitt leiddi af öðru og árið 2016 kom fyrsta litakortið út.“

Margir litanna í fyrsta kortinu höfðu þá þegar verið notaðir á heimili fjölskyldunnar. Sumir fengu meira að segja nöfn sem tengdust heimilisfólkinu. „Gaura- og Dömugrár voru til dæmis skírðir eftir herbergjum barnanna. Ég vildi aldrei kalla börnin sínum eigin nöfnum á Skreytum hús og notaði því alltaf Daman og Gaurinn.“

Síðan hafa fleiri litir bæst við, gjarnan vegna þess að Soffíu hefur vantað nákvæmlega rétta tóninn fyrir tiltekið verkefni. „Ég hef kannski verið að leita að geggjuðum lit í barnaherbergi, ekki fundið þann eina rétta og látið breyta uppskriftinni fyrir mig. Úr verður þá alveg nýr litur, einmitt sá sem ég þurfti.“

Litirnir bera gjarnan mjúk og hlýleg nöfn á borð við Ró, Værð og Ylja. Að sögn Soffíu er það engin tilviljun.

„Liturinn verður alltaf fyrst til og nafnið kemur síðar. Ég hef þó alltaf reynt að finna nafn sem passar við þau hughrif sem liturinn gefur mér. Nöfnin eru öll mjúk og blíð, rétt eins og litirnir. Kannski lýsa þau líka því hvernig mér finnst heimilið eiga að vera, fullt af ró, værð og blíðu.“

Litirnir eiga að skapa réttu stemninguna

Þegar Soffía er beðin um að nefna liti sem henni þykja sérstaklega fallegir fyrir haustið stendur ekki á svarinu.

„Tríó-litirnir eru æðislegir að mínu mati. Mjúkur, Mosi og Rómó eru allir til í þremur mismunandi styrkleikum og því svo auðvelt að aðlaga þá að rýminu.“

Hún bendir á að birtan í herberginu geti ráðið miklu um hvaða styrkleiki hentar best. „Þú gætir meira að segja sett ljósasta tóninn á dimmasta vegginn en notað dekkri tón á þá veggi sem fá meiri birtu. Litirnir eru til þess að leika sér með þá og skapa þá stemningu sem þig langar í.“

Að hennar mati er mikilvægast að heimilið endurspegli þá sem þar búa. „Heimilið þitt ætti að vera sá staður sem þér líður allra best á og taka utan um þig um leið og þú kemur inn.“

Svefnherbergið má ekki gleymast

Þótt stofan og eldhúsið fái gjarnan mesta athygli þegar kemur að innréttingum segir Soffía mikilvægt að gleyma ekki svefnherberginu.

„Hjónaherbergin eru dæmi um rými sem vilja svo oft sitja á hakanum. Við ætlum fyrst að klára eldhúsið og auðvitað stofuna. Svo þarf að laga herbergi krakkanna. En þetta rými, sem á að vera notalegur staður til að slappa af, vill oft verða að hálfgerðu geymslurými.“

Hún segir svefnherbergið eiga skilið sömu umhyggju og önnur rými heimilisins. „Það er mikilvægt að gefa því ást og umhyggju og gera það að dásamlegu afdrepi sem hreinlega tekur utan um mann.“

Átta ár eru síðan Soffía tók eigið hjónaherbergi í gegn. Þá varð fallegur rúmgafl upphafið að heildarmyndinni og í kjölfarið fann hún myrkvunargardínur sem pössuðu við litinn. „Eftir það púslaðist þetta allt saman. Ég er eiginlega enn svo ánægð með útkomuna að ég er ekkert komin með fiðring í að breyta þessu í bráð, aldrei þessu vant.“

Við endurnýjun herbergisins varð jafnframt til einn af þekktum litum hennar, Rómó.

Soffía hafði ákveðið að mála alla veggi herbergisins í dökkum lit, ekki aðeins vegginn á bak við rúmið. „Mér finnst svolítið klikkað að mála bara höfðagaflsvegginn. Það getur auðvitað komið mjög vel út, en sá sem á herbergið fær ekki að upplifa litinn þegar hann liggur í rúminu því þá snýr hann bakinu í málaða vegginn.“

Hún fór með gardínuefnið til Slippfélagsins þar sem liturinn var greindur og nýr litur útbúinn í samræmi við það. En Soffía var ekki alveg sátt við styrkleikann.

„Mér fannst hann ekki nógu dökkur, þannig að ég fór aftur og lét dekkja hann. Við máluðum, en okkur fannst hann enn ekki nógu dökkur. Við létum því dekkja hann í þriðja sinn og þá var allt eins og það átti að vera.“

Þannig varð fyrsta litaþrennan til, Rómó 1, 2 og 3.

„Mér finnst geggjað að vera með einhvern hlut, gardínu eða púða eða bara eitthvað sem heillar mann, og taka upp litinn úr því. Það kemur oft mjög fallega út.“

Að sögn Soffíu er gott svefnherbergi samspil margra þátta. Fallegir litir, myrkvunargardínur, hlýleg náttborðslýsing, góð rúmföt og þægilegir koddar vinna saman að því að skapa rólegt og notalegt umhverfi.

Jólaskrautið kemur niður af háaloftinu í október

Þegar talið berst að jólunum lifnar heldur betur yfir Soffíu. Hún segist hafa brennandi áhuga á jólaskrauti og hlakka til þess að byrja að skreyta nánast allt árið.

Þess vegna kemur kannski ekki á óvart að fyrstu skreytingarnar birtast snemma á heimilinu.

Ég er iðulega farin að týna niður af háaloftinu í byrjun október og lauma fram hinu og þessu smálegu. Ekki alveg farin alla leið, en svona farin að kitla jólataugina.

Hún segir fyrstu skreytingarnar í raun frekar mega kallast vetrarskraut. „Ég nota enga jólasveina eða slíkt í skreytingarnar, þannig að vetrarskraut hentar ágætlega til að byrja með.“

Soffía hefur tekið eftir því að jólaskraut birtist sífellt fyrr í verslunum og skilur vel að sumum finnist nóg um. Hún sér þó litla ástæðu til að hafa áhyggjur af því hvenær aðrir ákveða að skreyta.

„Mér finnst alltaf ótrúlega merkilegt að fólk hafi sterkar skoðanir á því hvenær einhver annar skreytir heima hjá sér. Það pirrar mig ekkert ef Jón eða Gunna ákveða að skella trénu upp í júlí. Það er bara þeirra mál.“

Hún veltir því fyrir sér hvort samfélagsmiðlar hafi aukið umræðuna um jólaskreytingar, enda fái fólk nú mun meiri innsýn í heimili annarra. „Mér finnst stórkostlega merkilegt að sjá prúðasta fólk verða alveg merkilega pirrað yfir því hvað aðrir gera sér til gamans.“

Nýtt jólatré og ný stemning í stofunni

Í ár verður sérstaklega spennandi að skreyta fyrir jólin á heimili Soffíu. Alrýmið hefur fengið nýtt yfirbragð, veggirnir eru í litnum Blíður og nýr sófi kominn í stofuna.

Þar að auki hefur Soffía fjárfest í nýju jólatré.

„Ég verð nú að viðurkenna að ég fór og keypti nýtt jólatré í september. Mig hafði lengi dreymt um tré með innbyggðri ljósaseríu sem sindrar á. Það er líka aðeins minna um sig en gamla tréð okkar, sem var að verða tuttugu ára.“

Hún segist hlakka mikið til að sjá hvernig jólaskreytingarnar koma út í nýju umhverfi. „Ég er bara spennt að enduruppgötva stofuna, svona skreytingalega séð.“

Þótt liturinn á veggjunum hafi breyst verður jólaskrautið áfram í þeim náttúrulegu tónum sem Soffía hefur lengi verið hrifin af. „Ég nota alls ekki rauðan lit á jólunum. Ég er miklu hrifnari af hvítu, grænu og brúnu. Það heldur áfram og passar í raun enn betur við nýja litinn en þann gamla.“

Hún er líka spennt fyrir jólakvöldi Húsgagnahallarinnar 5. nóvember, þar sem hún mun sjálf sýna hugmyndir að jólaskreytingum og veita gestum litaráðgjöf fyrir hönd Slippfélagsins.

„Ég bíð spennt eftir jólakvöldinu í Húsgagnahöllinni. Þau eru alltaf með eitthvað sem heillar mann upp úr skónum og í ár held ég að nýju bjöllurnar sem eru að koma eigi eftir að sigra mig.“

Jólin eru fyrst og fremst fjölskyldan

Þótt Soffía hafi gaman af því að skreyta snemma þýðir það ekki að hún setji endilega upp jólatréð í október eða nóvember. Hún hefur áður prófað að setja það upp mjög snemma, en sú tilraun var ekki alveg að hennar skapi.

Henni finnst best að setja tréð upp þegar nær dregur jólum, þótt spennan fyrir nýja trénu gæti haft áhrif á tímasetninguna í ár.

Jólin eru enda einn af hennar uppáhaldstímum, bæði vegna skreytinganna og samverunnar.

„Ég hlakka til að jólaskreyta næstum allt árið, en svo er ég svo merkilega skrítin að ég fer líka að hlakka mikið til að afskreyta um leið og annar í jólum er liðinn,“ segir hún. Hún tekur þó ekki skrautið niður fyrr en eftir áramót.

Þegar hún er spurð hvað jólin þýði fyrir hana kemur svarið án umhugsunar. „Jólin eru fjölskyldan og að eyða tíma saman, borða jólagrautinn hennar systur minnar og afganga helst alla daga.“

Heimilið á að segja sögu

Eftir öll árin í heimi lita, innréttinga og skreytinga hefur Soffía mótað sér skýra sýn á hvað gerir heimili fallegt og notalegt.

Að hennar mati er það ekki endilega nýjasta húsgagnið, dýrasta málverkið eða fullkomlega samræmd litapalletta sem skiptir mestu máli.

Það er persónuleikinn.

„Mér þykja alltaf skemmtileg heimilin sem segja mér sögu. Þau sýna mér hvað fólkið sem þar býr elskar og nýtur þess að gera. Bækurnar sýna áhugamálin, ljósmyndirnar sýna fjölskylduna og hlutirnir eru jafnvel frá ömmu eða afa.“

Listaverk og málverk skipta hana líka miklu máli og geta að hennar sögn gefið heimilum sérstakan karakter. „Það er auðvitað ákveðin formúla sem hægt er að fylgja. Maður er að blanda saman hráefnum til að búa til hina fullkomnu uppskrift.“

En þegar öllu er á botninn hvolft snýst heimilið um miklu meira en liti og fallega hluti.

Það er staðurinn þar sem fjölskyldan kemur saman, þar sem hægt er að slaka á eftir langan dag og njóta hversdagsins. „Maður nýtur þess mest að komast í kósígallann, kveikja á kertum og kúra með kallinum, krökkunum og hundunum. Heima er skjólið og þar líður manni alltaf best.“

Hitt og þetta

Vor eða haust?

Segi nú bara eins og góður vinur minn: Allar árstíðir eiga sinn sjarma.

Dökkt og dramatískt eða ljóst og rómantískt?

Ég er eflaust þarna mitt á milli og mest bara dramatísk og rómantísk.

Ein dós af málningu eða nýr sófi?

Bæði er best, sko, af því að ég var að láta mála og fá mér nýjan sófa. En dós af málningu svona almennt, því maður skiptir ekki eins oft um sófa.

Litir á veggi eða litir í húsgögnum?

Ég vil fá litina inn í rýmið með púðum, teppum og blómum, helst líka málverkum, en nýt þess að hafa veggina í mildum og hlutlausum tónum.

Fullt hús af gestum eða kósýkvöld heima?

Þetta eru svo erfiðar spurningar, því ég vil helst alltaf bæði. Ég elska að eiga bara kósýkvöld, en hvað er betra en að fá æðislegt fólk í heimsókn? Sérstaklega stórfjölskylduna, þegar allir eru að borða, tala og hlæja – helst á sama tíma.

Alltaf með framkvæmdir í gangi eða allt á sínum stað?

Aftur vil ég helst alltaf vera með framkvæmdir í gangi en jafnframt hafa allt á sínum stað. Það er mér alveg líkamlega erfitt að vera með allt í rúst og ég þrái að koma öllu á sinn stað. Þá fæ ég frið í sálina.

Jólatréð upp í nóvember eða bíða fram á Þorláksmessu?

Ég setti einu sinni upp jólatréð í byrjun nóvember fyrir myndatöku hjá H&H og það var alveg skelfilegt. Jólatré í tvo mánuði var ekki málið fyrir mig. Mér finnst fullkomið að setja tréð upp svona í kringum 10. desember, en ég yrði ekki hissa ef það færi fyrr upp í ár, svona af því að ég er spennt að prófa að skreyta nýja tréð.

Nýtt jólaþema á hverju ári eða sama gamla jólaskrautið með öllum minningunum?

Blanda. Jólaskraut getur verið hlaðið minningum og það er ómissandi að nota það. En svo hef ég alltaf fundið eitthvað „nýtt“ sem verður alveg í uppáhaldi. Stundum er það bara að breyta litum á slaufum eða bæta við nýjum jólakúlum. En ég verð líka að minnast á yndislegu trén frá KER, sem eru meðal míns eftirlætisjólaskrauts. Ég er búin að safna þeim í nokkur ár og fæ bara ekki nóg. Ég á orðið hvít tré, bæði mött og úr postulíni, auk svartra og brúnna, og þau eru bara hvert öðru fallegra.

#breytingarskeiði #endalausu #fæddist #nefnilega #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262957656d/-eg-faeddist-nefni-lega-a-enda-lausu-breytingar-skeidi-

📰 Aðrar fréttir

Opnar sig um það hryllilega sem Playboy-kóngurinn vildi að hún gerði með tvíburasystur sinni
📅 05.11.2026 👁️ 0
Opnar sig um það hryllilega sem Playboy-kóngurinn vildi að hún gerði með tvíburasystur sinni
Tvíburasysturnar Karissa Shannon og Kristina bjuggu í tvö ár í Playboy-setrinu með stofnanda vörumerkisins, Hugh Hefner. Á þessum tíma reyndi Hefner í...
Brá sér á klósettið á Hvolsvelli – Þegar hann kom til baka var bíllinn horfinn
📅 05.11.2026 👁️ 0
Brá sér á klósettið á Hvolsvelli – Þegar hann kom til baka var bíllinn horfinn
Karlmanni, sem skrapp á salerni á bensínstöð á Hvolfsvelli, brá í brún þegar hann kom aftur út en þá hafði ferðafélagi hans ekið burt á bílnum hans. S...
Þrjátíu ár frá slysinu sem hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir Guðmund Inga
📅 05.11.2026 👁️ 0
Þrjátíu ár frá slysinu sem hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir Guðmund Inga
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður utan flokka, rifjaði upp alvarlegt umferðarslys sem hann lenti í fyrir nákvæmlega 30 áru...
Verktaki sem Kópavogsbær krefur um milljarða er í greiðslustöðvun
📅 05.11.2026 👁️ 0
Verktaki sem Kópavogsbær krefur um milljarða er í greiðslustöðvun
Kópa­vogs­bær sækir full­ar heimt­ur vegna van­efnda verk­taka við bygg­ingu Barna­skóla Kárs­ness. Svona hljóðaði yfirskrift fréttatilkynningar frá K...
Forsetinn segir af sér
📅 05.11.2026 👁️ 0
Forsetinn segir af sér
Forseti Paragvæ, Santiago Pena, hefur tilkynnt að hann segi af sér. Þetta gerir hann eftir að seðlabanki landsins tók stærsta banka landsins yfir. Um ...
Sprengjuhótun í tölvupósti til Hörpu
📅 05.11.2026 👁️ 0
Sprengjuhótun í tölvupósti til Hörpu
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa fékk sprengjuhótun í tölvupósti í dag. Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, staðfesti það í samtali við frétt...
British man with Ebola in DR Congo arrives in UK for treatment
📅 05.11.2026 👁️ 0
British man with Ebola in DR Congo arrives in UK for treatment
The UK government says there are "well-established procedures for dealing with cases like this" and the risk to the public remains low.
Henry Nowak's killer has sentence increased to 25 years
📅 05.11.2026 👁️ 0
Henry Nowak's killer has sentence increased to 25 years
Judges ruled Vickrum Digwa's original term was unduly lenient and refused his bid to have it cut.
Má búast við að matvælaverð hækki á næstunni
📅 05.11.2026 👁️ 0
Má búast við að matvælaverð hækki á næstunni
Veðurfyrirbærið El Niño gæti valdið verulegum truflunum á landbúnaðarframleiðslu á næstu mánuðum. Þetta gæti orðið til þess að matvælaverð hækki til m...
Þorgerður Katrín styður Daða Má
📅 05.11.2026 👁️ 0
Þorgerður Katrín styður Daða Má
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar lýsti á Alþingi í dag yfir fullum stuðningi við Daða Má Kristófersson fjármála...
Táragasi beitt í Lyon - hundruð þúsunda mótmæla í Frakklandi
📅 05.11.2026 👁️ 0
Táragasi beitt í Lyon - hundruð þúsunda mótmæla í Frakklandi
Fjöldamótmæli voru boðuð í yfir 70 borgum í Frakklandi í dag. Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í nokkrum borgum.Verkalýðsfélagið CGT, sem er...
Inga máluð eins og dýr­lingur á kaffi­stofu kennara - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 0
Inga máluð eins og dýr­lingur á kaffi­stofu kennara - Vísir
Það kann að minna á einræðisríki að ráðherra sé sýndur í guðatölu. Og helgimyndadýrkun er heldur ekki leyfð undir lúterskri trú þjóðkirkjunnar. Engu a...
Fasteignafélagið Heimar hagnast umfram verðlag
📅 05.11.2026 👁️ 0
Fasteignafélagið Heimar hagnast umfram verðlag
Fasteignafélagið Heimar hagnast umfram verðlag Stefnt er að arðr­greiðslum til eig­enda fast­eigna­fé­lags­ins sem leigir meðal ann­ars hús­næði til h...
Dave fyrrum bassaleikari Wham kemur fram á Íslandi: „George bjó yfir ótrúlegum tónlistarhæfileikum“
📅 05.11.2026 👁️ 1
Dave fyrrum bassaleikari Wham kemur fram á Íslandi: „George bjó yfir ótrúlegum tónlistarhæfileikum“
Dave West fyrrum bassaleikari Wham! kemur fram á tónleikunum Celebrating George Michael sem fara fram í Hofi 20. nóvember og Hörpu kvöldið eftir 21. n...
Tuttugu og sex á fjár­hags­að­stoð nær allan ára­tuginn - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Tuttugu og sex á fjár­hags­að­stoð nær allan ára­tuginn - Vísir
Þetta kemur fram í greiningu velferðarsviðs á fjárhagsaðstoð á árunum 2016 til 2025 sem kynnt var í velferðarráði í gær. Hún var unnin að beiðni endur...
Jódís og Sverrir takast á um líflátshótanirnar: „Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa“
📅 05.11.2026 👁️ 1
Jódís og Sverrir takast á um líflátshótanirnar: „Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa“
Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingkona Vinstri grænna, svarar Sverri Helgasyni fullum hálsi í nýrri Facebook-færslu. „Ég nenni ekki að hlusta á þenna...
Þau þrjú verja Ís­land gegn ESA - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Þau þrjú verja Ís­land gegn ESA - Vísir
Þrír lögmenn hafa verið fengnir til að annast undirbúning málsvarnar Íslands vegna málshöfðunar Eftirlitsstofnunar EFTA gegn íslenska ríkinu vegn óful...
Stakk einn við Réttar­holts­skóla og barði annan í Mjóddinni - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Stakk einn við Réttar­holts­skóla og barði annan í Mjóddinni - Vísir
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur yfir unga manninum segir að hann hafi verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás aðfaranótt þriðjudags í septe...
Barst sprengjuhótun frá kunnug­legu net­fangi - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Barst sprengjuhótun frá kunnug­legu net­fangi - Vísir
Ómar Mehmet Annisius, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, segir að Isavia hafi borist hótun í dag.  Hótunin hafi verið metin ótrúverðug af lögreg...
Telja hótun sem beindist að Keflavíkurflugvelli ekki tengjast hótunum erlendis
📅 05.11.2026 👁️ 1
Telja hótun sem beindist að Keflavíkurflugvelli ekki tengjast hótunum erlendis
Ómar Mehmet Annisius aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum segir ekki talið að sprengjuhótun sem beindist gegn Keflavíkurflugvelli í dag tengist hót...
ESB hyggst kenna börnum á gervigreind
📅 05.11.2026 👁️ 1
ESB hyggst kenna börnum á gervigreind
ESB hyggst kenna börnum á gervigreind Fram­kvæmda­stjórn ESB stefnir að því að inn­leiða vottun í gervi­greind­ar­læsi fyrir 15 ára nem­endur skóla­ár...
Hyggjast flýta frumkvæðisrannsókn á samskiptum fjármálaráðherra og Landsvirkjunar
📅 05.11.2026 👁️ 1
Hyggjast flýta frumkvæðisrannsókn á samskiptum fjármálaráðherra og Landsvirkjunar
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd samþykkti í morgun að hefja frumkvæðisrannsókn á samskiptum fjármálaráðherra og Landsvirkjunar. Daði Már Kristóferss...
Leikstjóri einnar umdeildustu kvikmyndar sögunnar látinn
📅 05.11.2026 👁️ 1
Leikstjóri einnar umdeildustu kvikmyndar sögunnar látinn
Hinn umdeildi ítalski leikstjóri Tinto Brass lést í gær, 4. nóvember, 93 ára að aldri. Brass var í upphafi þekktur fyrir listrænar kvikmyndir en í sei...
Metropolitan Police release Russell Brand interview footage
📅 05.11.2026 👁️ 1
Metropolitan Police release Russell Brand interview footage
Brand was found guilty of one count of rape and three sexual assaults at Southwark Crown Court.
Russell Brand sakfelldur fyrir nauðgun - „Óhjákvæmilega langur fangelsisdómur“
📅 05.11.2026 👁️ 1
Russell Brand sakfelldur fyrir nauðgun - „Óhjákvæmilega langur fangelsisdómur“
Russell Brand, breski uppistandarinn og aktívistinn, hefur verið dæmdur fyrir nauðgun og kynferðisbrot. Lengd dómsins verður uppkveðin á mánudag.Bresk...
„Karma kamelljón“ gleður Ísraela
📅 05.11.2026 👁️ 1
„Karma kamelljón“ gleður Ísraela
„Karma kamelljón“ gleður Ísraela Boy George hélt tón­leika fyrir fullu húsi í Tel Avív þrátt fyrir kröfur um menn­ing­ar­snið­göngu á Ísrael. Þegar Bo...
63 pró­sent á fram­færslu­að­stoð með er­lent ríkis­fang - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
63 pró­sent á fram­færslu­að­stoð með er­lent ríkis­fang - Vísir
Þetta kemur fram í greiningu velferðarsviðs sem kynnt var í velferðarráði í gær. Úkraínskir ríkisborgarar voru fjölmennastir meðal erlendra ríkisborga...
Sprengjuhótun sem beindist að Keflavíkurflugvelli barst í tölvupósti
📅 05.11.2026 👁️ 1
Sprengjuhótun sem beindist að Keflavíkurflugvelli barst í tölvupósti
Sprengjuhótun barst Keflavíkurflugvelli í tölvupósti í dag. Lögregla mat hana ótrúverðuga. Hótun með sama hætti barst í síðasta mánuði að sögn upplýsi...
Five arrested for forcing women into prostitution in Tenerife
📅 05.11.2026 👁️ 2
Five arrested for forcing women into prostitution in Tenerife
Five people have been arrested in Tenerife after police uncovered an alleged network forcing women into prostitution to repay imposed debts of up to €...
Söguleg úrslit en varla kúvending strax
📅 05.11.2026 👁️ 1
Söguleg úrslit en varla kúvending strax
Demókratar náðu meirihluta bæði í öldungadeild og fulltrúadeild bandaríska þingsins í kosningum 3. nóvember. Það er algengt að flokkur sitjandi forset...
Russell Brand sakfelldur fyrir nauðgun
📅 05.11.2026 👁️ 1
Russell Brand sakfelldur fyrir nauðgun
Breski grínistinn Russell Brand var sakfelldur fyrir nauðgun og kynferðisofbeldi fyrir dómi í dag. Réttarhöld yfir honum hafa staðið síðan 12. október...
Hafi neytt konu til munnmaka í bíl - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Hafi neytt konu til munnmaka í bíl - Vísir
Í ákæru á hendur manninum, sem þingfest var fyrir luktum dyrum í Héraðsdómi Reykjaness í morgun, segir að maðurinn hafi að kvöldi fimmtudags í júlí ár...
More women likely to come forward, says detective who led Russell Brand investigation
📅 05.11.2026 👁️ 2
More women likely to come forward, says detective who led Russell Brand investigation
Det Supt Andy Furphy said he hoped other potential victims would gain "courage" and "confidence" from the guilty verdicts.
Russell Brand is being investigated over two new rape complaints, police say
📅 05.11.2026 👁️ 1
Russell Brand is being investigated over two new rape complaints, police say
Det Supt Andy Furphy said he hoped other potential victims would gain "courage" and "confidence" from the guilty verdicts.
Bókargagnrýni: Tvær hliðar á merkum manni
📅 05.11.2026 👁️ 3
Bókargagnrýni: Tvær hliðar á merkum manni
Davíðstíminn – Sjálfstæð saga leiðtoga og landsJón Trausti Reynisson – Reynir TraustasonÚtgefandi er Góður punktur
Russell Brand dæmdur sekur um nauðgun
📅 05.11.2026 👁️ 3
Russell Brand dæmdur sekur um nauðgun
Russell Brand, breski uppistandarinn og aktívistinn, hefur verið dæmdur fyrir nauðgun og kynferðisbrot. Lengd dómsins verður uppkveðin á mánudag.Bresk...
'Flawed' Army training contributed to Max George's death, coroner rules
📅 05.11.2026 👁️ 0
'Flawed' Army training contributed to Max George's death, coroner rules
A coroner rules Second Lt Max George's death on Salisbury Plain was an accident.
Kíev herðir aðgerðir gegn mótmælendum sem afhjúpuðu „pyntingaklefa“ Azov-sveitarinnar
📅 05.11.2026 👁️ 3
Kíev herðir aðgerðir gegn mótmælendum sem afhjúpuðu „pyntingaklefa“ Azov-sveitarinnar
Kíev herðir aðgerðir gegn mótmælendum sem afhjúpuðu „pyntingaklefa“ Azov-sveitarinnar Fréttin5. nóvember 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Öry...
Kannaðist ekki við spíttið og sagðist hafa verið í ísbíltúr - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 2
Kannaðist ekki við spíttið og sagðist hafa verið í ísbíltúr - Vísir
Í úrskurði Landsréttar um gæsluvarðhaldskröfu Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu segir að móttakandi sendingarinnar hafi verið ótilgreint gjaldþrot...
Lögreglan ennþá á byrjunarreit eftir meira en ár í bráðabirgðahúsnæði
📅 05.11.2026 👁️ 2
Lögreglan ennþá á byrjunarreit eftir meira en ár í bráðabirgðahúsnæði
Framkvæmdir eru ekki hafnar í lögreglustöðinni á Ísafirði þar sem mygla fannst fyrir hálfu öðru ári. Lögreglumönnum á Vestfjörðum finnst óboðlegt að v...
Lögreglan enn á byrjunarreit eftir meira en ár í bráðabirgðahúsnæði
📅 05.11.2026 👁️ 1
Lögreglan enn á byrjunarreit eftir meira en ár í bráðabirgðahúsnæði
Framkvæmdir eru ekki hafnar í lögreglustöðinni á Ísafirði þar sem mygla fannst fyrir hálfu öðru ári. Lögreglumönnum á Vestfjörðum finnst óboðlegt að v...
The Russell Brand I saw in court was not the flamboyant character most people will know
📅 05.11.2026 👁️ 1
The Russell Brand I saw in court was not the flamboyant character most people will know
Brand stood upright in the dock as the verdicts were read out in court - ending this sometimes surreal trial.
Borgin hafi rekið fólkið á bak við græna bók­haldið - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 3
Borgin hafi rekið fólkið á bak við græna bók­haldið - Vísir
Þetta kemur fram í bókun Lífar á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í gær, þar sem kolefnisspor Reykjavíkur fyrir árið 2025 var kynnt. „Nú hefur meirih...
Helga Dögg spyr um viðbrögð mannauðsráðgjafa við ábendingu um hugsanlegt einelti
📅 05.11.2026 👁️ 3
Helga Dögg spyr um viðbrögð mannauðsráðgjafa við ábendingu um hugsanlegt einelti
Helga Dögg spyr um viðbrögð mannauðsráðgjafa við ábendingu um hugsanlegt einelti Fréttin5. nóvember 2026Innlent, Skólamál, TransmálLeave a Comment Hel...
Vill sekta fyrirtæki sem auglýsa ekki á íslensku
📅 05.11.2026 👁️ 3
Vill sekta fyrirtæki sem auglýsa ekki á íslensku
Auglýsingar á Íslandi eiga að vera á íslensku, segir Snorri Másson þingmaður Miðflokksins. Hann mælti fyrir nýju frumvarpi á Alþingi fyrir nokkru um b...
Cristiano Ronaldo: Why has Portugal legend retired from international game?
📅 05.11.2026 👁️ 3
Cristiano Ronaldo: Why has Portugal legend retired from international game?
As Cristiano Ronaldo retires from international football, Guillem Balague looks at why and what is next for the Portugal legend.
Cristiano Ronaldo retirement: Why has Portugal legend retired from international game?
📅 05.11.2026 👁️ 1
Cristiano Ronaldo retirement: Why has Portugal legend retired from international game?
As Cristiano Ronaldo retires from international football, Guillem Balague looks at why and what is next for the Portugal legend.
How rapist Russell Brand was never far from controversy
📅 05.11.2026 👁️ 1
How rapist Russell Brand was never far from controversy
BBC correspondent Sima Kotecha explains how the trial unfolded.
Russell Brand dæmdur fyrir nauðgun - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 3
Russell Brand dæmdur fyrir nauðgun - Vísir
BBC greinir frá sakfellingunni en koma mun í ljós hver refsing Brand verður á mánudag. Brand, sem er 51 árs, var ákærður fyrir þrjár nauðganir, þrjú k...
Tenerife remains a mass-market resort where nightlife and casinos serve as pleasant additions
📅 05.11.2026 👁️ 3
Tenerife remains a mass-market resort where nightlife and casinos serve as pleasant additions
The largest of the Canary Islands welcomes millions of tourists each year, drawn by its extensive sandy beaches, volcanic landscapes, and mild climate...