Hér má sjá tónlistarmyndbandið:
„Þetta er fyrsta lagið af stóru verkefni sem við höfum verið að vinna í meira en ár. Fyrir nokkrum vikum fórum við saman í bústað á Snæfellsnesinu þar sem við kláruðum fullt af frábærum lögum sem við erum sjúklega spennt að kynna fyrir landsmönnum á komandi tímum og það er ekki langt í meiri músík,“ segja Guðjón og Jóna en þau eru sömuleiðis saman með útvarpsþáttinn Traffíkina á FM957.
Guðjón og Jóna skutust bæði upp á stjörnuhimininn með þátttöku í Idolinu en Guðjón hafnaði fimmta sætinu en Jóna náði alla leið í úrslit og lenti í öðru sæti.
Þau kasta sér nú í djúpu laugina með útgáfu og eru margar tilfinningar í gangi.
„Ég er skíthræddur við sum lög sem eru á leiðinni því þau eru allt of „horny“,“ segir Guðjón en lagið Burt af klúbbnum fjallar um togstreituna sem myndast í ástinni.