Svo virðist sem Google Chrome vafrinn sé að hlaða niður stórri gervigreindarskrá á tölvur notenda án þess að spyrja notendur um leyfi. Um er að ræða um 4 gígabæta gagnapakka sem tengist litlu tungumálalíkani sem kallast Gemini Nano.
Sumir notendur hafa tekið eftir óvenjulegri notkun á hörðum disk sínum eða skyndilegri minnkun á geymsluplássi. Við nánari skoðun hefur komið í ljós mappa undir Chrome skránum sem ber heitið OptGuideOnDeviceModel, þar sem þessi gögn eru geymd.
Þýðir ekkert að eyða – Chrome sækir gögnin aftur
Það sem hefur valdið enn frekari gremju og pirring notendar er að ef möppunni er eytt þá virðist Chrome einfaldlega sækja gögnin aftur sjálfkrafa. Þetta hefur verið staðfest á mörgum stýrikerfum, þar á meðal Windows 11, macOS og Ubuntu.
Ein leið til að koma í veg fyrir niðurhalið er að fara í stillingar Chrome í gegnum chrome://flags og slökkva á ákveðnum eiginleikum. Það er þó langt frá því að vera augljóst fyrir almenna notendur og er einungis fyrir mun lengra komna notendur.
Gervigreindareiginleikar keyra samt að mestu á netþjónum
Helstu gervigreindar eiginleikar sem Chrome notar, eins og samantektir og aðstoð við skrif, keyra að mestu á netþjónum Google en ekki á tölvu notandans. Þessi stóra skrá virðist því aðeins notuð fyrir takmarkaða hluti sem er falin nokkuð djúpt inni í stillingum vafrans, sem veldur notendum áhyggjum þar sem tilgangur hennar er ekki að fullu ljós.
Þar sem Chrome er einn vinsælasti vafri heims gæti umfangið verið gríðarlegt. Ef milljónir eða jafnvel milljarðar tækja sækja slíkan gagnapakka gæti það haft áhrif á netnotkun og jafnvel stóraukið kolefnisspor.
Sakar Google um mögulegt brot á persónuverndarlögum
Tölvunar- og lögfræðingurinn Alexander Hanff hefur gagnrýnt þessa framkvæmd Google og telur að hún kunni að brjóta gegn evrópskum persónuverndarlögum, þar sem notendur séu ekki upplýstir né gefi samþykki fyrir niðurhalinu né sé innihald og tilgangur þess útskýrður.