Menntamálaráðuneytið tilkynnti þann 7. ágúst að nemendur í 10. bekk verði útskrifaðir með tölueinkunn í vor í stað bókstafaeinkunnar. Ákvörðunin og ekki síst tímasetning hennar, rétt áður en skólaárið hefst, hefur hlotið töluverða gagnrýni úr hópi kennara og skólastjórnenda.
Fyrstu fundir innleiðingateyma skólanna, MMS og ráðuneytisins fara fram þessa dagana og eru síðustu fundir áætlaðir 15. október, tæpum átta vikum eftir að skólastarf hefst.
„Mér finnst eðlilegt að kennarar hafi áhyggjur því eðlilega vilja þeir gera þetta vel og vera faglegir í sínu mati þegar þeir skila af sér þessum lokaeinkunnum sem eiga að vera í 10. bekk. Við ætlum að reyna að gera þetta mjög hratt því það skiptir máli að koma þessu sem fyrst inn í skólana,“ segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar- og skólaþjónustu.
„Við verðum til þjónustu reiðubúin“
Hún segir að nú gefist tækifæri til að skoða betur hvað sé á bakvið hverja tölu og vægi þátta innan námsgreina svo samræmi verði á milli skóla. Þá tekur hún fram að ráðherra hafi ítrekað að verkefnið fái þann stuðning sem þarf til svo það verði farsælt.
Nú voru skólar margir hverjir settir í morgun, er ekki bagalegt að nemendur og kennarar viti ekki alveg hvernig námsmati verður háttað þegar skólinn er að hefjast?
„Það er áskorun, á sama tíma og að við erum tilbúin. Við erum búin að leggja töluvert á okkur til þess að innleiðingateymi hjá okkur sé tilbúið með skilaboðin, við verðum til þjónustu reiðubúin.“
Telur þú að þessi breyting að breyta úr bókstöfum yfir í tölustafi muni skila því sem gert er ráð fyrir?
„Það á auðvitað eftir að koma í ljós. Við sjáum allavega tækifæri til að skerpa á ákveðnum þáttum sem við heyrum að kennarar eru alveg sammála um. Það sem hefur kannski verið óttinn í þessu er hraðinn, á sama tíma og við teljum okkur vera að mæta því.“