Það kom fram í skýrslugjöf Ming Ting Mancel, sem ákærð er fyrir morð á dóttur sinni, í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, að dóttir hennar vildi deyja fyrst, á undan henni sjálfri og eiginmanni hennar, en hún var ekki alveg sátt við aðferðina sem beitt var við morðið á henni, hnífstungu í hjarta.
Sjá einnig: Óhugnanlegar lýsingar Ming á dauða dóttur sinnar
Fram kom í máli Ming að fjölskyldan hefði ákveðið að fara til Íslands til að skoða landið og svipta sig lífi. Samkvæmt framburði Ming svipti eiginmaður hennar, Emeric, dóttur þeirra Catherine lífi með tveimur hnífstungum, á hótelberbergi fjölskyldunnar á Edition-hótelinu í Reykjavík, þann 14. júní árið 2025.
Emeric Mancel stakk dótturina, sem var þrítug, fyrst inni á baðherbergi, síðan leiddi Ming dótturina inn í rúm þar sem Emeric stakk hana aftur.
Hann svipti sig síðan lífi. Ming sjálf reyndi að svipta sig lífi með einum af hnífunum þremur sem voru með í för, en tókst það ekki.
Ming var spurð hvort fjölskyldan hefði rætt um aðrar aðferðir til að svipta sig lífi áður en þau komu til Íslands og sagði hún að þau hefðu rætt um að kasta sér fram af brú í skjóli nætur. En þegar þau komu hingað rann upp fyrir þeim að hér var engin nótt og því ekki hægt að gera slíkt í skjóli myrkurs.
„Hún var mjög hugrökk“
Fram kom í máli Ming að dóttirin Catherine hafði viljað deyja fyrst, á undan foreldrum sínum. Hún var hins vegar ekki fyllilega sátt við drápsaðferðina en sætti sig við hana að lokum. Framburður Ming um þetta var óskýr en hún var þráspurð út í umræður fjölskyldunnar um drápsaðferðina. Þeim spurningum var svarað með löngum þögnum og óljósum vitnisburði.
Emeric gaf Catherine svefnlyf og sterkt áfengi eftir fyrri hnífstunguna, til að milda þjáningar hennar, að sögn Ming.
„Hún var mjög hugrökk,“ svaraði Ming, spurð um viðbrögð dótturinnar við fyrri hnífstungunni. Sagði hún að dóttir hennar hefði ekki kveinkað sér. Hún sagðist sjálf hafa grátið mikið á meðan þessu gekk og muni sum atvik mjög óljóst.
Hún var þráfaldlega spurð út í drápsaðferðina og hvort og hvernig dóttir hennar hefði sætt sig við að deyja með þessum hætti. Var hún spurð hvort ekki hefði komið til greina að deyða hana með svefnlyfjum og sagði Ming þau ekki hafa talið að sú aðferð væri örugg.
Hún sagði að aðferðin hafi ekki skipt öllu máli, „það sem er mikilvægast var að við vorum búin að ákveða að gera þetta. Hún vildi deyja og aðferðin skipti ekki öllu máli.“
Ming viðurkenndi engu að síður að dóttir hennar hefði viljað deyja með öðrum hætti.