Ebba Margrét Magnúsdóttir læknir segist hugsi eftir að hafa hlýtt á tal forstjóra Landspítalans á starfsmannafundi þar sem rætt var um hagræðingu og rekstur. Ebba segir vissulega mega spara á LSH og hafi hún bent á leiðir til þess þegar hún var formaður Læknaráðs LSH og sat í stjórn Læknafélags Reykjavíkur.
„Var mér kurteislega bent á að það væri líklega bara best að þegja.“
Ebba heldur áfram í grein sinni sem birtist á Vísi:
„Ekki vera að minnast á það að þú verður óvart yfirlæknir og þiggur laun sem slíkur á kostnað LSH þegar þú ert prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, jafnvel þó að þú skoðir aldrei sjúkling, þá eru laun þín tvöföld, má spara þar ? Svo mátti ég alls ekki minnast á að stóra byggingin sem nú byrgir okkur sýn í Vatnsmýrinni væri á röngum stað. Það var svo mikilvægt að prófessorarnir þyrftu stutt að ganga milli Læknagarðs og LSH.“
Ebba segir að þú sé í lagi að segja en ekki þegja. „Þegar fólki í hlutastarfi sem þorir að segja það sem þeim í brjósti ber er í launalausu leyfi er vikið úr starfi vegna „hagræðingar“ það er ekki í lagi.“ Augljóst er að Ebba vísar þar til máls Ragnars Freys Ingvarssonar læknis sem sagt var upp fyrir stuttu og fjölmiðlar hafa ítarlega greint frá.
Sjá einnig: Segir stjórnendur Landspítalans segja ósatt – „Undan þeim svíður.“
Ebba rekur að á starfsmannafundinn sem hún sat hafi meða annars verið rætt um: „Nýjan spítala, gámana sem nú rísa í Fossvogi sem er alveg ný bráðamóttaka, líkt og skólastofurnar sem hafa verið reistar við grunnskóla landsins þegar mygla eða þrengsli hafi valdið vanda. Já skellum þeim bara í gámana.“
Ebba segir að stutt sé í sveitarstjórnarkosningar og minnir á að kjósa fólk sem þorir að segja.
„Það er ekki bara betra að þegja. Viljum við fólk sem þorir að segja það sem þarf að segja? Fólk sem vill vel og þorir að opna munninn og jafnvel ganga í verkin sem þarf að græja? Fólk sem hefur djörfung og dug? Má það? Ég held bara ekki.
En við þurfum að velja og sá á kvölina sem á völina. Öll viljum við betra samfélag með góðum samgöngum, betri gjaldfrjálsum leikskólum, grunnskóla sem mæta börnum á þeirra stað, án aðgreiningar. Félagsþjónustu sem sinnir þeim sem þurfa þjónustu af alúð og nærgætni. Heilbrigðiskerfi sem virkar með starfsfólki með hjartað á réttum stað. Græn svæði, umhverfisvæn og umvefjandi. Bara betri heim með betra fólki?“