Rannsókn á E. coli-hópsmiti sem kom upp á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík í október 2024 er enn til meðferðar á ákærusviði lögreglu. Málið hefur verið þar síðan í janúar á þessu ári eða í um 8 mánuði.
Árni Bergur Sigurðsson, settur sviðstjóri ákærusviðs, segir aðeins einn með stöðu sakbornings í dag. Áður voru fjórir með stöðu sakbornings, þar á meðal matráðurinn og Félagsstofnun stúdenta, sem á og rekur leikskólann. Árni vildi ekki gefa upp hver væri einn eftir með réttarstöðu sakbornings.
Ekki liggur fyrir að svo stöddu hvort ákært verði í málinu og segir Árni það enn til skoðunar. Hann kvaðst ekki vilja fullyrða um hvort líklegt væri að svo færi.
Hann segir ákærusvið í tvígang hafa sent málið aftur til rannsóknar hjá lögreglu síðan í janúar en að það hafi verið á borði ákærusviðs síðan í maí. Það sé ekki óalgengt ef ákærusvið telji að eitthvað vanti upp á í rannsókn, til dæmis gögn eða upplýsingar.
Það voru foreldrar stúlku sem lá þungt haldin á spítala sem fóru fram á að málið yrði rannsakað af lögreglu. Í kröfu sem lögfræðingur lagði fram fyrir hönd þeirra kemur fram að ekki fáist betur séð en að gáleysi starfsmanna hafi verið svo stórkostlegt að það jaðri við ásetning. Kröfunni var beint að Félagsstofnun stúdenta, sem rekur leikskólann, en ekki starfsfólki.
E. coli-hópsmitið er rakið til rangrar meðferðar á matvælum. Matráður leikskólans hafði ekki hlotið neina menntun eða fræðslu um öryggi matvæla. Matráðurinn lét af störfum að eigin ósk eftir smitið.
Hátt í 50 börn veiktust eftir að hafa borðað E. coli-mengaðan mat og líf nokkurra barna hékk á bláþræði eftir sýkinguna.