Austurfrétt greinir frá. Að svo stöddu er ekki vitað hvað olli menguninni en grunur er um að náttúrulegt smit hafi komist í brunna segir í frétt á vef HEF Veitna. Við reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits Austurlands á neysluvatni hafi greinst E. coli-gerlar.
Óhætt sé að nota vatn til annarra þarfa, svo sem til baða þar sem fjöldi gerlanna hafi verið innan þeirra marka sem miðað sé við að megi vera í baðvatni í náttúrunni. Frekari sýnatökur verði gerðar í vikunni.
Leiðbeiningar um suðu á neysluvatni má finna hér.
Framkvæmdir standi nú yfir á vatnsveitu Borgarfjarðar sem miða að uppsetningu á gegnumlýsingartæki fyrir veituna. Gegnumlýsingartækinu er ætlað að koma í veg fyrir mengun sem þessa en uppsetningu er ekki enn lokið. Lagt verði kapp á að koma tækinu í gagnið en óljóst er hvort að það nást í vikunni.