Bolli sem sýnir Múmínsnáða kafa innan um skeljar var seldur fyrir rétt rúmlega 46 þúsund evrur í Finnlandi. Upphæðin samsvarar nærri 6,4 milljónum króna. Þetta er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir múmínbolla.
Í frétt finnska ríkisútvarpsins, Yle, segir að sams konar bolli hafi átt fyrra met. Sá var seldur fyrir fimm árum fyrir helming þessarar metupphæðar, eða 23 þúsund evrur.
Netverslunin Muumimukit Rahaksi, sem sérhæfir sig í sölu safngripa með Múmínálfunum, stóð fyrir uppboði á bollanum. Það hófst á síðasta ári og endaði ekki fyrr en í apríl.
Í fréttatilkynningu verslunarinnar frá í dag segir að mikill áhugi hafi verið á bollanum og að fimm safnarar hafi boðið meira en 40 þúsund evrur í hann. Gripurinn endaði að lokum í höndum safnara sem býr á Norðurlöndunum.
Hluti af lítilli prufu fyrir gerð fyrsta sumarbollans
Söfnun bolla með myndum úr Múmíndal, þekktasta sköpunarverki finnska rithöfundarins Tove Jansson, nýtur talsverðra vinsælda víða um heim og þar á meðal á Íslandi. Ný hönnun lítur reglulega dagsins ljós og sumar þeirra eru gerðar í takmörkuðu upplagi.
Metbollinn var gerður í sérstakri prufulotu fyrir fyrsta sumarbollann sem var framleiddur. Þessi sumarbolli kom á markað 2006 og kallast Simmhopp, eða Köfun. Prufan nefnist aftur á móti Simhopp med snäckskal, eða Kafað með skeljum. Eini munurinn á bollunum er skeljamynstrið sem sveipar Múmínsnáðann.
Starfsmenn í verksmiðju Arabia, sem framleiðir Múmínbollana, eignuðust þessa fágætu bolla þegar þeir voru gerðir fyrir 20 árum. Talið er að aðeins tíu slíkir séu til.