Dröfn Þórarinsdóttir er látin

Dröfn Þórarinsdóttir, húsmóðir og öflugur sjálfboðaliði í starfi Íþróttafélagsins Þórs, lést á heimili sínu á Hlíð 10. júlí síðastliðinn, 77 ára að aldri. Þetta kemur fram í umfjöllun akureyri.net.
Dröfn fæddist á Akureyri 17. ágúst 1947 og bjó þar nær alla ævi. Hún vann á yngri árum meðal annars hjá Niðursuðuverksmiðju K. Jónssonar, Heklu og Gefjun en lengst af sinnti hún heimili og fjölskyldu á meðan eiginmaður hennar, Sigurður Baldvin Friðriksson skipstjóri, var til sjós. Síðar starfaði hún á Sjúkrahúsinu á Akureyri, meðal annars á Seli hjúkrunardeild og geðdeild.
Dröfn var ötull stuðningsmaður Íþróttafélagsins Þórs og sinnti þar fjölmörgum sjálfboðastörfum, einkum fyrir körfuknattleiksdeildina og meistaraflokk kvenna í knattspyrnu. Fyrir störf sín hlaut hún bæði silfur- og gullheiðursmerki félagsins. Þá tók hún einnig þátt í sjálfboðastarfi á Kaffi Sólar á hjúkrunarheimilinu Hlíð.
Eiginmaður Drafnar var Sigurður Baldvin Friðriksson, sem lést árið 2023. Þau eignuðust fimm börn, fjölda barnabarna og barnabarnabarna.