Forsvarsmenn Icelandair hyggjast draga úr flugframboði félagsins um fimm prósent í haust til að bregðast við hækkandi eldsneytisverði eftir vegna átakanna við Persaflóa. Þetta bætist ofan á tveggja prósenta samdrátt í flugframboði á vormánuðum.
Icelandair greindi frá þessu í tilkynningu til Kauphallarinnar um farþegaflutninga í apríl. Fyrirtækið flutti 402 þúsund farþega í síðasta mánuði. Það eru fimm prósent fleiri farþegar en í fyrra. Sætanýting batnaði milli ára.
Í tilkynningu Icelandair er vitnað til orða Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair, um viðbrögð við hækkandi eldsneytisverði. Hann segir að gripið hafi verið til áframhaldandi kostnaðaraðhalds, fargjöld hækkuð og dregið úr flugframboði um tvö prósent á öðrum ársfjórðungi.
Þessu til viðbótar er hafin vinna við að draga úr framboði um fimm prósent í haust. Einnig er til skoðunar að flýta fyrir að Icelandair hætti notkun Boeing 757-þotanna. Þær hafa verið lengi í flota flugfélagsins en eru frekari á eldsneyti en nýrri flugvélar.