Vivian Kubrick, dóttir hins goðsagnakennda leikstjóra Stanley Kubrick, hefur stigið fram og svarað einni lífseigustu samsæriskenningu kvikmyndasögunnar, en hún tengist síðustu kvikmynd föður hennar, Eyes Wide Shut.Kenningin hefur gengið árum saman og snýst um 20 mínútna kafla sem sagður er hafa verið klipptur úr myndinni eftir skyndilegt andlát Kubricks árið 1999. Í þessum meintu týndu mínútum átti að leynast mun dekkri endir á myndinni sem sumir hafa síðar tengt við Jeffrey Epstein og glæpi hans.Vivian segir engar sannanir fyrir þessu liggja fyrir.
Dóttir Stanley Kubrick svarar einni lífseigustu samsæriskenningu kvikmyndasögunnar