Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff eru sögð standa í skilnaðarferli samkvæmt frétt Vísis í morgun. Í skriflegu svari til fréttastofu RÚV segist Dorrit hvorki geta játað því né neitað, en leggur ríka áherslu á að tengsl hennar við landið muni ekki breytast.
Í fyrirspurn fréttastofu til Dorritar Moussaieff var hún spurð hvort hún gæti staðfest fréttir af skilnaði þeirra Ólafs Ragnars og hvort slíkt myndi breyta sambandi hennar við Ísland.
„Ég get hvorki staðfest né neitað því ég veit það ekki,“ segir Dorrit í svari sínu.
Hún bætir því við að samband hennar við Ísland sé „ekki samningsatriði“.
„Ég hef eytt fleiri dögum ævi minnar á Íslandi en í nokkru öðru landi! Og mun halda því áfram. Ég varð ástfangin af Íslandi um leið og fætur mínir snertu jörðina og íslenskt loft fyllti lungun,“ segir í svari hennar.
Vísir greindi frá því í morgun að hjónin, sem hafa verið gift í 23 ár, stæðu í skilnaðarferli sem væri ekki að fullu gengið í gegn. Þar segir jafnframt að þau séu góðir vinir og að þeim líði báðum vel.
Ólafur Ragnar og Dorrit giftu sig á sextugsafmæli Ólafs, þann 14. maí árið 2003, eftir þriggja ára trúlofun. Þau sáust síðast opinberlega saman hér á landi við útför Davíðs Oddssonar í Hallgrímskirkju þann 13. mars síðastliðinn.
Fréttastofa RÚV reyndi að hafa samband við Ólaf Ragnar Grímsson við vinnslu fréttarinnar en hann hefur ekki svarað fyrirspurnum.