Prúðbúnir nemendur Verslunarskóla Íslands voru á ferðinni í miðborginni í gær í tilefni af peysufatadegi skólans. Þeir gengu frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíg og áleiðis niður á Ingólfstorg þar sem þeir stigu gamla íslenska dansa, svo sem skottís, við harmónikkuleik.
Flest voru klædd peysu- eða kjólfötum, en tveir grænlenskir nemendur voru klæddir sínum þjóðbúningum, anórökkum. Rætt var við þá í sjónvarpsfréttum.
Blíðskaparveður var í borginni og fjöldi fólks fylgdist með fríðu föruneyti Verzlinga, líkt og sjá má á þessum ljósmyndum sem Ragnar Visage tók.