Áfrýjunardómstóll í Svíþjóð mildaði í dag dóm yfir sænsku „sorpdrottningunni“ Faribu Andersson, úr sex árum í fimm ár. Hún var eftir sem áður dæmd fyrir stórfelld umhverfisspjöll meðan hún rak sorpfyrirtæki sitt Think Pink.
Tíu manns voru í héraði dæmdir fyrir sinn þátt í málinu en áfrýjunardómstóllinn sýknaði tvo þeirra og mildaði refsinguna hjá þremur þeirra, þar á meðal Andersson. Að mati dómstólsins voru það fjórar manneskjur sem gegndu lykilhlutverki innan fyrirtækisins í að fremja gróf umhverfisbrot á 18 mismunandi stöðum í landinu. Alls voru um 200 þúsund tonn af sorpi meðhöndluð á rangan hátt.
Think Pink gekk í fyrstu afar vel undir stjórn Andersson og hún var meðal annars valin einn áhugaverðasti frumkvöðull Svíþjóðar í tímaritinu Dagens Industri árið 2018. Fallið var hratt eftir að málið komst upp árið 2020. Fyrirtækið varð gjaldþrota og Andersson var ákærð ásamt tíu öðrum í lok árs 2023.
Samkvæmt ákærunni var ýmiss konar úrgangur með eiturefnum urðaður án frekari meðhöndlunar, til dæmis byggingarefni með eiturefnum á borð við PCB, blý og kvikasilfur. Dæmi voru um hátt hlutfall blýs í neysluvatni vegna gerða Think Pink. Þetta er stærsti umhverfisglæpur í sögu Svíþjóðar.
Auk fangelsisdómsins er Andersson og Thomas Nilsson, fyrrverandi eiginmanni hennar, gert að greiða yfir 200 milljónir sænskra króna, tæplega 2,7 milljarða íslenskra króna, í skaðabætur. Stærstur hluti þeirra fer til sveitarfélaganna Botkyrka og Västerås.