Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur segir ekki hægt að álykta að Þóra Arnórsdóttir eða aðrir starfsmenn RÚV hafi móttekið, brotist inn í, afritað og sent gögn úr farsíma Páls Steingrímssonar, skipstjóra hjá Samherja.
„Raunar verður ekki ráðið af gögnum málsins hvort farsíminn hafi verið afritaður í heild á umræddum tíma þótt fjölmiðlarnir [...] og [...] hafi birt upplýsingar úr honum á tímabilinu sem hér um ræðir,“ segir í dómi héraðsdóms, sem hefur sýknað Þóru og RÚV af skaðabótamáli sem Páll höfðaði á hendur þeim.
RÚV, Stundin og Kjarninn fjölluðu ítarlega um svokallaða skæruliðadeild Samherja vorið 2021. Páll hefur sakað blaðamenn um að hafa, í samráði við fyrrverandi eiginkonu sína, byrlað honum, stolið síma hans, afritað gögn úr honum og deilt sín á milli. Sex blaðamenn höfðu stöðu grunaðra í rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á málinu, sem var að lokum fellt niður.
Páll höfðaði miskabótamál á hendur Þóru Arnórsdóttur, fyrrverandi ritstjóra Kveiks, og RÚV, sem Héraðsdómur sýknaði í morgun.
„Þegar gögn málsins eru virt heildstætt hefur stefnanda ekki auðnast sönnun þess að stefnda C [Þóra] og aðrir starfsmenn stefnda B [RÚV] hafi sýnt af sér þá háttsemi sem liggur til grundvallar miskabótakröfum hans. Verður því þegar af þeirra ástæðu að sýkna stefndu af kröfum stefnanda.“