Davíð Þór minnist Steins Ármanns: „Sennilega hæfileikaríkasti maður sem ég hef kynnst“

Davíð Þór minnist Steins Ármanns: „Sennilega hæfileikaríkasti maður sem ég hef kynnst“

Davíð Þór minnist Steins Ármanns: „Sennilega hæfileikaríkasti maður sem ég hef kynnst“

„Það var bara eins og að vera kýldur í magann,“ segir Davíð Þór Jónsson, prestur við Laugarneskirkju, um hvernig honum varð við þegar hann fékk fregnir af andláti æskuvinar síns og samstarfsfélaga til fjölda ára, Steins Ármanns Magnússonar, leikara.

„Og í raun og veru er það fyrst núna, tveimur sólarhringum síðar, þegar fólk er að tala við mann og votta manni samúð sem það er farið að síast í gegnum raunveruleikaskynið. Að þetta hafi raunverulega gerst. Þetta er eins og vondur draumur.“

Steinn Ármann lést á heimili sínu í Hafnarfirði á föstudag. Hann var 61 árs að aldri.

Vinátta sem spannaði rúm 50 ár

Davíð Þór og Steinn Ármann kynntust í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði fyrir rúmum fimmtíu árum, þá 10 ára gamlir. Davíð Þór segir að fyrstu kynni hafi verið langt frá því að vera vinátta.

„Mig minnir að okkur hafi verið att saman í slagsmál sem ég vann. Og það held ég að hafi verið eina skiptið sem ég vann Stein í aflraunum,“ segir Davíð Þór.

Hann segir að vináttan hafi þróast upp úr fermingaraldri. Í framhaldsskóla hafi vináttuböndin svo styrkst í gegnum sameiginlegan áhuga á kvikmyndagerð.

„Þá fórum við að gera kvikmyndir saman. Við fengum meira að segja gullverðlaun fyrir kvikmynd sem við gerðum á norrænni kvikmyndakeppni fyrir unglinga,“ segir Davíð Þór.

Framlag þeirra félaga til keppninnar árið 1981, Nordisk Smalfilm, var kvikmyndin Sætbeiska sextánda árið. Myndin, sem fjallar um fyrstu ástina, var eina íslenska kvikmyndin sem hlaut verðlaun það árið.

Steinn Ármann og Davíð Þór stofnuðu kvikmyndafyrirtækið Viggo-bros í kjölfar sigursins, ásamt meðhöfundi kvikmyndarinnar, Inga Hafliða Guðjónssyni, og kvikmyndatökumanninum Bjarna Sigmundi Einarssyni.

„Við vorum stundum kallaðir fóstbræður“

Samstarf þeirra Steins Ármanns og Davíðs Þórs átti eftir að verða langt og farsælt - og teygði sig allt frá handritsskrifum og uppistandi yfir í sjónvarp og útvarp.

Útvarpsþáttur þeirra félaga, Radíus, fór í loftið á Aðalstöðinni árið 1992 og naut mikilla vinsælda. Þeir Steinn Ármann og Davíð Þór hlutu mikla athygli fyrir gálgahúmor og óhefðbundin efnistök – og upp úr samstarfinu spratt gamantvíeykið Radíusbræður. Þáttunum var svo fylgt eftir með samnefndum sjónvarpsþáttum í Ríkisútvarpinu tveimur árum síðar.

„Ég man eftir því þegar við vorum í skemmtibransanum og við vorum spurðir: hvað eruð þið lengi að undirbúa ykkur fyrir Radíuskvöld? Og við svöruðum: 25 ár. Þannig að það má segja að samstarf okkar nái ein fimmtíu ár aftur í tímann,“ segir Davíð Þór.

Davíð Þór segir Stein Ármann hafa verið miklu meira en bara samstarfsfélagi. Steinn hafi verið einn af hans nánustu vinum.

„Þegar við vorum ekki að vinna þá fórum við fjölskyldurnar saman í útilegu. Þannig að þetta var miklu meira en samstarf. Við vorum stundum kallaðir fóstbræður og ég held að það sé alveg hægt að nota það orð um okkar samband.“

Síðustu ár hafi sambandið þó verið stopulla og þeir haldið hvor í sína áttina.

„En það skipti ekki máli. Þegar við hittumst þá var sko eins og við hefðum hist í gær. Við vorum orðnir það góðir vinir að við þurftum ekkert að vera að hjala hvor um annan vikulega eða daglega ef út í það var farið,“ segir Davíð Þór.

„Stórkostlegur maður, frábær leikari, frjór og skapandi“

En hvernig maður var Steinn Ármann?

„Steinn var stórkostlegur maður. Hann var sennilega hæfileikaríkasti maður sem ég hef kynnst,“ segir Davíð Þór.

„Hann var frábær leikari, hann var frjór og skapandi, hann var svo fjölhæfur. Ekki bara sem listamaður. Sem leikari og höfundur gat hann bara spunnið og spunnið upp úr sér vitleysu og dellu, sem ég átti í fullum tré með bara að ná að setja niður á blað svo við gætum leikið það í útvarpinu daginn eftir,“ segir Davíð Þór.

Auk þess hafi Steinn Ármann verið þeim hæfileikum gæddur að vera mikill mannþekkjari og átt auðvelt með að lesa fólk.

„Hann var svo mannglöggur að það var nánast ofurhæfileiki hjá honum.“

Davíð Þór segir að honum sé helst minnisstætt þegar þeir fóru saman í fyrsta skipti saman á Borgarfjörð eystri, þaðan sem Steinn Ármann á rætur sínar að rekja. Þar hafi Steinn þekkt fólk sem hann hafði aldrei séð áður.

„Steinn bara sá á svipnum á því hverra manna það var. Ég sagði sameiginlegum vini okkar frá þessu og þá sagði hann: Það er ekki neitt, ég hef séð hann þekkja hunda sem hann hefur aldrei séð áður.“

Kynnti sig stundum sem Steina smið

Steinn Ármann var maður margra hæfileika og einstaklega jarðbundinn segir Davíð Þór. Mögulega hafi Steinn verið of jarðbundinn fyrir leiklistarbransann.

„Honum fannst svo hlægilegt þegar það var verið að upphefja listina sem eitthvað æðislega göfugt ferli. Honum fannst ekkert merkilegra að vera leikari en að vera smiður, enda kynnti hann sig stundum sem Steina smið,“ segir Davíð Þór og heldur áfram.

„Fólk sem tók sjálft sig hátíðlega fór í hans fínustu taugar. Okkar grín byrjaði svolítið í því að við vorum að hæðast einmitt að því fólki sem tók sjálft sig hátíðlega og aðeins að kippa því niður á jörðina.“

Davíð Þór segir Stein Ármann hafa verið fjölhæfan listamann. Auk þess að vera frábær gamanleikari með góða tilfinningu fyrir tímasetningum hafi hann haft einstakt lag á börnum.

„Hann gat leikið fyrir börn og verið ekkert nema hlýjan og nærgætnin og fengið krakkana til að elska sig, eins og kötturinn Keli er dæmi um. En svo sneri hann sér við og fór með þann groddaralegasta húmor sem þú getur ímyndað þér.“

Fékk aldrei þau tækifæri eða það lof sem hann átti skilið

Davíð Þór segir miður að Steini Ármanni hafi oft og tíðum verið skipað í sams konar hlutverk, hlutverk skúrka. Líkamlegt atgervi hafi þar mögulega spilað inn í.

„Af því hann var ekki svona hár og grannur og vöðvarýr, eins og hann hefði aldrei unnið ærlegt handtak um sína daga. Og af því hann leit ekki þannig út, þá var honum oft kastað í hlutverk einhverra durta og rudda.“

Hann hafi því glaðst mikið þegar Steinn Ármann fékk hlutverk Ketils, bónda sem barðist gegn stóriðju, í annarri seríu Ófærðar.

„Hann gjörsamlega brilleraði í ofboðslega dramatísku hlutverki í þeirri seríu, sem sýnir hversu fjölhæfur hann var,“ segir Davíð Þór.

„En hann fékk aldrei þau tækifæri og aldrei það lof sem hann átti skilið. Hann fékk samt fullt að gera og ég held að enginn geti sagt að hann hafi einhvern tímann séð Stein lélegan í einhverju hlutverki. Allt sem hann gerði gerði hann frábærlega.“

Ruddi brautina fyrir nútíma uppistand

Davíð Þór segir Stein Ármann skilja eftir sig mikið tómarúm í lífi allra sem tengdust honum. Hvað listamaðurinn Steinn Ármann skilji eftir sig verði þó að koma í ljós.

„En það er engum blöðum um það að fletta að hann ruddi nýrri tegund af gríni braut. Þegar við vorum að troða upp, með uppistand, þá höfðu fáir lagt það fyrir sig síðan Ómar Ragnarsson var að syngja gamanvísur á þorrablótum. Nútíma uppistand var ekki fyrirbæri á Íslandi og Steins verður minnst fyrir að hafa rutt þá braut,“ segir Davíð Þór.

Síðustu dagar hafi verið erfiðir.

„En það gleður mig að sjá hvað fólki var hlýtt til Steins og hvað fólki þótti vænt um hann. Það eru allir á einu máli um að það sé mikið skarð fyrir skildi og það er rétt. Hann skilur eftir sig skarð sem aldrei verður fyllt og verður hluti af íslensku menningarlandslagi í framtíðinni.“

#davíð #minnist #steins #ármanns #þór

Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-23-david-thor-minnist-steins-armanns-sennilega-haefileikarikasti-madur-sem-eg-hef-kynnst-484677

📰 Aðrar fréttir

Óttar Guðmundsson skrifar: Þjóðarvakning
📅 10.10.2026 👁️ 0
Óttar Guðmundsson skrifar: Þjóðarvakning
Mynd Jónas Hallgrímsson er óumdeilt þjóðskáld Íslendinga.
Mæður í fæðingarorlofi upplifa sig oftar einmana en áður
📅 10.10.2026 👁️ 0
Mæður í fæðingarorlofi upplifa sig oftar einmana en áður
Einmanaleiki hefur aukist undanfarna áratugi. Hann hefur áhrif á fólk á öllum aldri og alls staðar í samfélaginu.Að jafnaði upplifa 36% þjóðarinnar si...
Réttindalaus ökumaður ók á hjól með þremur börnum og flúði – VÍS þarf að bæta tjón stúlku
📅 10.10.2026 👁️ 0
Réttindalaus ökumaður ók á hjól með þremur börnum og flúði – VÍS þarf að bæta tjón stúlku
Landsréttur hefur staðfest fulla og ótakmarkaða bótaskyldu VÍS trygginga vegna líkamstjóns 13 ára stúlku sem var farþegi á breyttu léttbifhjóli þegar ...
Líkindareikningur lausgyrtra dómsdagsspámanna
📅 10.10.2026 👁️ 0
Líkindareikningur lausgyrtra dómsdagsspámanna
Líkindareikningur lausgyrtra dómsdagsspámanna Rom­an Yampolskiy met­ur lík­urn­ar á að gervi­greind út­rými mann­kyn­inu 99,999999 pró­sent. Sif Sig­m...
Mikill viðbúnaður yfirvalda vegna fyrirhugaðra mótmæla
📅 10.10.2026 👁️ 0
Mikill viðbúnaður yfirvalda vegna fyrirhugaðra mótmæla
Indverska kakkalakkahreyfingin Janata hefur boðað til fjöldamótmæla í Delhi, höfuðborg Indlands, í dag til að krefjast endurbóta á kosningum og afsagn...
What's On across the Canary Islands this Bank Holiday weekend
📅 10.10.2026 👁️ 0
What's On across the Canary Islands this Bank Holiday weekend
The Canary Islands are preparing for a busy Bank Holiday weekend, with concerts, festivals, traditional celebrations, sporting competitions and family...
Queen reflects on reading 'forbidden' Lady Chatterley's Lover under the pillow
📅 10.10.2026 👁️ 2
Queen reflects on reading 'forbidden' Lady Chatterley's Lover under the pillow
In BBC documentary The Book That Changed My Life, the Queen speaks about memorable moments in her own reading.
Nord Stream trial: How German police followed the evidence - to Ukraine
📅 10.10.2026 👁️ 2
Nord Stream trial: How German police followed the evidence - to Ukraine
After four years, a Ukrainian man is set to stand trial in Hamburg accused of sabotaging the Nord Stream pipelines.
Lýsa yfir neyðarástandi í þremur ríkjum vegna fellibyls
📅 10.10.2026 👁️ 2
Lýsa yfir neyðarástandi í þremur ríkjum vegna fellibyls
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Flórída, Alabama og Georgíu í Bandaríkjunum vegna fellibylsins Isaias sem nú gengur yfir. Veðurfræðingar vara vi...
Flydubai attacker began drifting towards extremism in Australia, UAE says
📅 10.10.2026 👁️ 2
Flydubai attacker began drifting towards extremism in Australia, UAE says
The United Arab Emirates' attorney-general also alleges the co-pilot was trying to crash the plane into Tel Aviv's airport.
Friðarsúla Yoko Ono tendruð í tuttugasta sinn
📅 10.10.2026 👁️ 3
Friðarsúla Yoko Ono tendruð í tuttugasta sinn
Friðarsúla Yoko Ono var tendruð í tuttugasta sinn í Viðey í gærkvöld og var friðsæl athöfn haldin í Viðey af því tilefni. Tónlistarkonan Árný Margrét ...
Life-threatening Hurricane Isaias makes landfall in Florida
📅 10.10.2026 👁️ 3
Life-threatening Hurricane Isaias makes landfall in Florida
The storm took direct aim at Florida and is expected to impact Alabama, Georgia, and Louisiana.
Öflugur jarðskjálfti af stærðinni 7,7
📅 10.10.2026 👁️ 3
Öflugur jarðskjálfti af stærðinni 7,7
Jarðskjálfti af stærðinni 7,7 varð í Panama í gær, um klukkan 18:00 að íslenskum tíma. Skjálftinn átti upptök sín um tíu kílómetra frá litlum bæ, Pita...
Trump og Pútín gera samning um dísilolíu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Trump og Pútín gera samning um dísilolíu
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að hann hafi komist að samkomulagi við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um afhendingu á 300.000 tonnum af dísilolí...
Vance ætlar ekki að horfa á af­tökuna í beinni - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Vance ætlar ekki að horfa á af­tökuna í beinni - Vísir
Hasan, sem myrti þrettán manns í skotárás á Fort Hood-herstöðinni árið 2009, á að verða tekinn af lífi af aftökusveit í desember. Vance ræddi málið vi...
CJP, Gyanesh Kumar: Tens of thousands of forces deployed as Delhi braces for cockroach protest
📅 09.10.2026 👁️ 4
CJP, Gyanesh Kumar: Tens of thousands of forces deployed as Delhi braces for cockroach protest
Several trains to Delhi have been cancelled and dozens of metro stations are shut to stop protesters from gathering.
UK weather: a weekend of showers and sunshine ahead of warmer temperatures next week
📅 09.10.2026 👁️ 4
UK weather: a weekend of showers and sunshine ahead of warmer temperatures next week
With sunshine and showers forecast for the weekend, next week could see a return to some warmer temperatures but there will be gales for some.
Vance ekki spenntur fyrir aftökunni í beinni - „Þá ætla ég ekki að horfa“
📅 09.10.2026 👁️ 4
Vance ekki spenntur fyrir aftökunni í beinni - „Þá ætla ég ekki að horfa“
J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna er ekki áhugasamur um fyrirhugaða aftöku á Nidal Malik Hasan sem myrti 13 manns í herstöðinni Fort Hood í Texas á...
Þekkir þú RÚV stefin?
📅 09.10.2026 👁️ 4
Þekkir þú RÚV stefin?
Upphafsstef þáttanna sem sendir hafa verið út á rásum RÚV í gegnum tíðina eru sem greypt inn í minni þjóðarinnar.Trompetleikarinn Tumi Torfason hefur ...
Screams, haunting scenes and deadly hide-and-seek, as Celebrity Traitors heats up
📅 09.10.2026 👁️ 4
Screams, haunting scenes and deadly hide-and-seek, as Celebrity Traitors heats up
Episode four saw another contestant killed off, a ghoulish mission near a graveyard and a spooky twist.
Fréttir Vikunnar: Fimleikaæfingar Dorritar og 40 ára afmæli Stöðvar 2
📅 09.10.2026 👁️ 4
Fréttir Vikunnar: Fimleikaæfingar Dorritar og 40 ára afmæli Stöðvar 2
Bergild Festival fór yfir fréttir vikunnar í Vikunni með Gísla Marteini í kvöld. Ýmislegt bar á góma, til að mynda heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðh...
Trump's shock Russia deal highlights mounting pressure to curb fuel prices
📅 09.10.2026 👁️ 4
Trump's shock Russia deal highlights mounting pressure to curb fuel prices
The US president hopes to ease his party's pain before next month's midterm elections, writes the BBC's North America correspondent.
Aflífun í beinni útsendingu fordæmd en Trump er sama
📅 09.10.2026 👁️ 2
Aflífun í beinni útsendingu fordæmd en Trump er sama
Aflífun í beinni útsendingu fordæmd en Trump er sama Stríðs­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna er for­dæmd­ur fyr­ir að boða beina út­send­ingu af af­líf­...
Kolbeinn Stefánsson hjólar í fjölmiðla og háskólasamfélagið: „Við erum tilbúin að trúa öllu slæmu um karla“
📅 09.10.2026 👁️ 4
Kolbeinn Stefánsson hjólar í fjölmiðla og háskólasamfélagið: „Við erum tilbúin að trúa öllu slæmu um karla“
Kolbeinn Stefánsson, dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, gagnrýnir harðlega hvernig íslenskir fjölmiðlar fjölluðu um umdeilda rannsókn á ...
Reynir Valgeirsson skrifar: Skálanesbót – fuglarnir voru þar á undan kvíunum
📅 09.10.2026 👁️ 4
Reynir Valgeirsson skrifar: Skálanesbót – fuglarnir voru þar á undan kvíunum
Forspjall: Skálanes, landið, fólkið og fuglarnir
Trump rýfur einangrun Rússlands
📅 09.10.2026 👁️ 4
Trump rýfur einangrun Rússlands
Trump rýfur einangrun Rússlands Banda­ríkja­for­seti af­nem­ur við­skipta­bann Vest­ur­landa á olíu frá Rússlandi, sem átti að þvinga Vla­dimír Pútín ...
Faðir nauðgaði 14 ára stúlku á meðan móðirin tók það upp á farsímann sinn
📅 09.10.2026 👁️ 4
Faðir nauðgaði 14 ára stúlku á meðan móðirin tók það upp á farsímann sinn
Foreldrar fjórtán ára stúlku í Indlandi hafa verið handteknir eftir hrottalegt kynferðisbrot gagnvart henni. Faðirinn nauðgaði stúlkunni á meðan móðir...
JD Vance ætlar ekki að horfa á aftöku Hasans verði henni streymt
📅 09.10.2026 👁️ 4
JD Vance ætlar ekki að horfa á aftöku Hasans verði henni streymt
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna segist ekki ætla að horfa á aftöku Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, verði hún sýnd í beinni útsen...
Skrúð­gangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Skrúð­gangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu - Vísir
Chris Bryant, Norður-Írlandsmálaráðherra í bresku ríkisstjórninni, greindi frá ákvörðuninni í kvöld. Hún kemur í kjölfar nærri tveggja vikna átakastöð...
Gengur ekki að fjöldaframleiða framandi ágenga tegund
📅 09.10.2026 👁️ 4
Gengur ekki að fjöldaframleiða framandi ágenga tegund
Minkar og menn eru til umræðu á ráðstefnu sem er haldin í Norræna húsinu og er á vegum Samtaka um dýravelferð. Samtökin vilja Ísland án loðdýraræktar ...
Three men found guilty of murdering two Australian surfer brothers and US friend
📅 09.10.2026 👁️ 4
Three men found guilty of murdering two Australian surfer brothers and US friend
The bodies of Jake and Callum Robinson and their friend Carter Rhoad were found at the bottom of a well.
Reynir Valgeirsson skrifar: Selstaðavík – landið, hafsbotninn, byggðin og versta hamfarasviðsmyndin
📅 09.10.2026 👁️ 4
Reynir Valgeirsson skrifar: Selstaðavík – landið, hafsbotninn, byggðin og versta hamfarasviðsmyndin
Forspjall: Selstaðavík, landið, hafsbotninn og byggðin:Áður en sjálf hamfarasviðsmyndin er rakin þarf að sjá staðinn fyrir sér sem eina heild. Selstað...
Kvartaði yfir Sjúkratryggingum og heilbrigðisráðuneytinu vegna andláts dóttur sinnar á erlendu sjúkrahúsi - Alma beðin um almennar upplýsingar vegna málsins
📅 09.10.2026 👁️ 4
Kvartaði yfir Sjúkratryggingum og heilbrigðisráðuneytinu vegna andláts dóttur sinnar á erlendu sjúkrahúsi - Alma beðin um almennar upplýsingar vegna málsins
Umboðsmaður alþingis telur ekki tilefni til að halda áfram meðferð kvörtunar sem maður nokkur lagði fram vegna andláts dóttur hans á sjúkrahúsi í ónef...
Trump samdi við Pútín um dísel - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Trump samdi við Pútín um dísel - Vísir
Bandaríkjastjórn hefur samhliða þessu slakað tímabundið á höftum á rússneskum orkufyrirtækjum svo olían komist á markað. Trump greindi frá samkomulagi...
Sóttvarnarráðstöfunum aflétt í Rússlandi
📅 09.10.2026 👁️ 4
Sóttvarnarráðstöfunum aflétt í Rússlandi
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin kallar eftir því að rússnesk stjórnvöld deili gögnum um andlát starfsmanns á rannsóknastofu. Grunur vaknaði um að hún hefð...
Aukin heilsuefling eldra fólks gæti sparað 20 milljarða á ári
📅 09.10.2026 👁️ 4
Aukin heilsuefling eldra fólks gæti sparað 20 milljarða á ári
Hægt væri að spara ríkissjóði 20 milljarða á ári með því að seinka vistun þúsund manns á hjúkrunarheimili um eitt ár.Þetta segir Janus Guðlaugsson íþr...
„Við erum næstum að kæfa fram­halds­skóla­stigið“ - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
„Við erum næstum að kæfa fram­halds­skóla­stigið“ - Vísir
Í framsögu Magnúsar Þórs Jónssonar, formanns Kennarasambands Íslands, á fundinum kom fram að skólakerfið verði ekki byggt með skyndilausnum frá einu k...
Fjölbragðaglímumaður handtekinn eftir ólöglegt tak á 75 ára dómara sem dó í hringnum
📅 09.10.2026 👁️ 4
Fjölbragðaglímumaður handtekinn eftir ólöglegt tak á 75 ára dómara sem dó í hringnum
Fjölbragðaglímukappi í Mexíkó hefur verið handtekinn eftir að hafa tekið 75 ára gamlan dómara ólöglegu glímutaki. Dómarinn lést í kjölfarið.Miðillinn ...
Ölgerðin sögð hafa rutt samkeppni úr vegi með kröfu um einkasölu
📅 09.10.2026 👁️ 4
Ölgerðin sögð hafa rutt samkeppni úr vegi með kröfu um einkasölu
Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, í morgun vegna gruns um að Ölgerðin hefði gerst sek um misnotkun á markaðsrá...
Drumcree: Secretary of state Sir Chris Bryant to ban the Drumcree parade
📅 09.10.2026 👁️ 4
Drumcree: Secretary of state Sir Chris Bryant to ban the Drumcree parade
The parade has led to a stand-off between Orangemen and nationalist residents of the Garvaghy Road in Portadown lasting almost two weeks.
Drumcree: Secretary of state Sir Chris Bryant bans contentious parade
📅 09.10.2026 👁️ 0

Vance biðlar til ungra reiðra manna - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Vance biðlar til ungra reiðra manna - Vísir
Miklu púðri hefur að undanförnu verið varið í að ná til ungra bandarískra manna og hefur JD Vance varaforseti verið fenginn sérstaklega í það verkefni...
Fordæma það að Pillay hafi fengið friðarverðlaun Nóbels
📅 09.10.2026 👁️ 4
Fordæma það að Pillay hafi fengið friðarverðlaun Nóbels
Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels sakar Navi Pillay, friðarverðlaunahafa Nóbels í ár, um gyðingafordóma. Pillay hefur kallað stríðsrekstur Í...
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky criticises 'gift to Putin'
📅 09.10.2026 👁️ 4
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky criticises 'gift to Putin'
Ukraine's president said allowing Russia to sell petroleum products would prolong a war that must be ended.
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky calls it a 'gift to Putin'
📅 09.10.2026 👁️ 4
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky calls it a 'gift to Putin'
Ukraine's president sharply criticised the move, calling it an "investment in war that must be ended, not prolonged".
Arion banki krefst tuga milljóna frá huldufyrirtæki sem stýrt er af manni sem finnst ekki
📅 09.10.2026 👁️ 4
Arion banki krefst tuga milljóna frá huldufyrirtæki sem stýrt er af manni sem finnst ekki
Arion banki hefur stefnt fyrirtæki, sem lítið fer fyrir og ekki virðast finnast merki um á skráðu heimilisfangi þess, til greiðslu um 83 milljóna krón...
Commentator Katie Zacharia picked as new White House press secretary
📅 09.10.2026 👁️ 4
Commentator Katie Zacharia picked as new White House press secretary
The conservative commentator currently works as a communications adviser at Trump Media & Technology Group.
Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir - Vísir
Greint er frá því í dagbók lögreglunnar að þetta hafi gerst í umdæmi lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi.  ...
Man arrested for allegedly setting fire to a dog in south Tenerife
📅 09.10.2026 👁️ 4
Man arrested for allegedly setting fire to a dog in south Tenerife
A man has been arrested in Adeje, south Tenerife, on suspicion of burning a dog alive, in a disturbing case that has also exposed wider concerns about...
JD Vance casts doubt on firing squad execution and says he won't watch it
📅 09.10.2026 👁️ 4
JD Vance casts doubt on firing squad execution and says he won't watch it
The planned execution of Nidal Hasan by firing squad would be the first military execution in more than 60 years.