Danska ríkisútvarpið hefur þetta eftir slökkviliðinu á svæðinu. Slysið varð þar sem þyrlurnar jusu vatni yfir gróðureld í nágrenni bæjarins Psaþa á Korintueiði í dag.
Kýríakos Mitsótakis forsætisráðherra Grikklands staðfestir einnig í færslu á samfélagsmiðlum að hinir látnu hafi verið danskur þyrluflugmaður og grískur umsjónarmaður.
„Ég votta fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð,“ segir hann.
Báðir áhafnarmeðlimir hinnar þyrlunnar höfðu slysið af. Annar þeirra var grískur og hinn breskur samkvæmt slökkviliðinu.