Mun fleiri bílar voru nýskráðir á fyrsta ársfjórðungi þessa árs miðað við á sama tíma í fyrra. Orsökin er líklegast breyting á vörugjöldum nýskráðra bíla um áramót.
Á fyrstu fjórum mánuðum ársins hafa alls verið nýskráðir ríflega fjögur þúsund og fimm hundruð fólksbílar, sem er 21% aukning miðað við sama tímabil árið áður. Þróun nýskráninga það sem af er ári virðist að stórum hluta tengjast auknum innflutningi bíla undir lok árs 2025 í aðdraganda breytinga á vörugjöldum. Þá hækkuðu vörugjöld á nýja bíla sem ganga að hluta eða öllu leyti fyrir jarðefnaeldsneyti.
Búið að skrá nánast alla bíla þessa árs
Sigurður Berndsen, forstjóri bílaleigunnar Hertz á Íslandi, segir hávaxtaumhverfi síðustu ára hafa skapað lítið svigrúm til fjárfestinga og endurnýjunar. Hækkun vörugjalda leiddi til þess að farið var í að kaupa og tolla bíla fyrir síðustu áramót. Þær bifreiðar hafi svo verið skráðar síðustu þrjá til fjóra mánuði.
„Ríkið gerir ekki ráð fyrir að kauphegðun breytist þegar þau ákveða að auka skattheimtu eða vörugjöld á bifreiðar.“
Þannig að þessi hækkun á tölum endurspeglar ekki fjölda bíla sem þið ætlið að kaupa yfir árið?
„Nei, við erum í sjálfu sér bara búin að kaupa meira og minna alla bíla. Það er búið að skrá nánast alla bíla sem bílaleigur ætla að kaupa á þessu ári. Þannig að það verður ekki mikið um skráningar í maí og júní sem hafa verið stærstu skráningarmánuðirnir fyrir bílaleigubíla. Þannig að það liggur ljóst fyrir að mínu mati að fyrir þetta ár verða vörugjöld af bifreiðum ekki nema kannski þrír til fimm milljarðar en stefnt var að sautján milljörðum og ég held að þetta gat komi í ljós núna í haust þegar talið verður upp úr kössunum.“
Ferðamenn velja hefðbundna eldsneytisbíla
Sigurður segir mest keypt af tengiltvinnbílum, bensín- og dísilbílum. Vörugjöldin hækkuðu umtalsvert á þeim bílum um áramót. Það sé langt í land að hægt sé að skipta öllum ökutækjum bílaleiga út fyrir rafmagnsbíla. Ferðamenn vilji frekar leigja sér bíla sem ganga fyrir bensíni eða dísil.
„Eins og ég hef oft sagt, Ísland er hálfgert safarí og fólki sem kemur til Íslands dettur ekki fyrst í hug að fara að leigja sér rafmagnsbíl, bæði eru ekki margir sem þekkja þá og einnig þarf að kynna sér orku- og hleðsluinnviði.“