Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni en umferðarljós á gatnamótunum voru á tímabili óvirk. Vegagerðin bað ökumenn um að sýna aðgát á svæðinu við þessar aðstæður en áður hafði verið greint frá því að bilunin væri að valda umferðartöfum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gaf út að búast mætti við umferðartöfum vegna bilunarinnar. Ökumenn voru minntir á að fylgja umferðarmerkjum á staðnum.
Þá lagði lögreglan til að ökumenn skoðuðu að breyta ferðaáætlun sinni ef fyrirhugað væri að aka um umrætt svæði.
Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um opnun. Þá var fyrirsögn breytt.