Búast megi við miklum umferðartöfum í dag

Breiðholtsbraut
Mynd: Vegagerðin
Umferðarljós á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Nýbýlavegar, á og við brúnna yfir Reykjanesbraut, eru óvirk og óvíst hversu lengi viðgerð mun standa yfir en þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Sama gildir um umferðarljósin á gatnamótum Nýbýlavegar, Dalvegar og Skemmuvegar. Umferðartafir eru viðbúnar vegna þessa, en lögreglan minnir ökumenn á að fylgja umferðarmerkjum á staðnum og mögulega að breyta áætlun sinni ef fyrirhugað er að aka þarna um þennan eftirmiðdaginn.