Brynjar Leó Hjartarson hefur verið sakfelldur fyrir ítekuð kynferðisbrot gegn stúlku sem var 13 og 14 ára er brotin áttu sér stað, fyrrihluta ársins 2024, en Brynjar var þá tvítugur að aldri. Dómur var kveðinn upp yfir honum í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 30. apríl síðastliðinn.
Brynjar var ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni með því að hafa á tímabilinu janúar til 17. maí 2024 haft margoft samræði og önnur kynferðismök við stúkluna, án samþykkis og með því að beita hana ólögmætri nauðung og nýta sér yfirburði sína sökum aldurs og þroskamunar, sem og þess að stúlkan var háð fíkniefnum og lyfjum.
Brotin voru framin á heimili Brynjars, inni á salerni í verslunarmiðstöðinni Mjóddinni, utandyra við Breiðholtskirkju og tjaldi í Laugardalnum.
Brynjar var einnig ákærður og sakfelldur fyrir sifskaparbrot með því að hafa stuðlað að því að stúlkan kom sér undan valdi Barnaverndar Reykjavíkur. Einnig fyrir barnaverndarlagabrot með því að hafa veitt stúlkunni aðgang að lyfinu OxyContin og hafa hvatt hana til fíkniefnaneyslu.
Sagðist hafa talið stúlkuna vera 17 ára
Brynjar neitaði sök og bar meðal annars við að hann hafi talið stúlkuna vera 17 ára en ekki 13-14 ára, og hann hafi ekki vitað að hún væri í stroki. Framburður hans tók einhverjum breytingum í gegnum meðferð málsins á meðan framburður stúlkunnar þótti stöðugur.
Brotin þóttu sönnuð en ungur aldur Brynjars var metinn honum til málsbóta. Til refsiþyngingar var hins vegar að „brot ákærða beindust að lífi, heilsu og velferð brotaþola, og tóku til langs tímabils. Ákærði braut á grófan hátt gegn brotaþola og var háttsemi hans til þess fallin að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir hana.“
Var Brynjar Leó Hjartarson dæmdur í þriggja ára fangelsi. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða stúlkunni 2,5 milljónir króna í miskabætur.
Dóminn má lesa hér.