Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands voru veitt í vikunni. Sigurvegari samkeppninnar í heild var doktorsverkefni Svövu Kristinsdóttur, doktorsnema í lífverkfræði sem gengur út á að þróa vefjastoðefni úr brúnþara í stað dýravefja sem nýtist meðal annars til að meðhöndla krónísk sár, bruna eða aðrar vefjaskemmdir.
„Það byggir á því að taka brúnþara og búa til úr honum það sem kallað er vefjastoðefni, sem er það sem er notað innan vefjaverkfræði til að í raun og veru búa til líkamsvefi.“
Í umsögn dómnefndarinnar segir að verkefnið hafi mikinn samfélagslegan ávinning og möguleika til atvinnu- og verðmætasköpunar til framtíðar auk þess sem það mæti vaxandi kröfum um sjálfbærni í heilbrigðisgeiranum. Svava segir mikla nýtingarmöguleika fólgna í verkefninu.
„Við sjáum fyrir okkur að geta notað þessa uppfinningu sem við erum búin að vinna að í fimm ár í einhvers konar vefjarannsóknir eða vefjauppbyggingu og þá erum við að tala um alls konar möguleika. Allt frá því að rækta grænt kjöt eða byggja bein, allt þar á milli.“
Þarabylting
Heilmiklir möguleikar séu fyrir hendi þegar kemur að þara, bæði innan læknisfræðinnar og matvælageirans.
„Ég á nú ekki þessa setningu, ég held að hún komi frá forsetanum okkar að það er mögulega framundan einhvers konar þarabylting. Þannig við erum bara spennt og ætlum að fylgja með í þessari þarabyltingu sem er handan við hornið.“