Vegagerðin gerir ráð fyrir að síðasta brúin í framkvæmdum Vegagerðarinnar á sunnanverðum Vestfjörðum fari í útboð um miðjan maí. Nýlega var sagt frá því að brúin færi í útboð í lok apríl en síðasta haust hafði Vegagerðin talið að útboðið færi fram um áramótin.
Tvær steyptar brýr yfir Djúpafjörð og Gufufjörð eru í vinnslu og þeim framkvæmdum á að ljúka um áramót. Þriðja og síðasta brúin á að vera 250 metra löng stálbogabrú yfir Djúpafjörð. Það er lokahnykkurinn í vegbótum á Vestfjarðavegi 60 um sunnanverða Vestfirði. Þegar þeim er lokið verður leiðin um hálftíma styttri og öll klædd bundu slitlagi. Vegagerðin gerir ráð fyrir verklokum 2028.