Dómur þess efnis var kveðinn upp klukkan 15. Hann hefur ekki verið birtur en hinn áfrýjaði dómur var óraskaður. Brim hafði áður verið sýknað bæði í héraði og Landsrétti en Hæstiréttur ómerkti fyrri dóm Landsréttar í mars síðastliðnum.
Axel Jósefsson Zarioh féll fyrir borð fiskiskips á vegum Brims í Vopnafirði þann 18. maí 2020. Viku síðar var leit að Alex hætt. Tæpu ári síðar, þann 4. apríl 2021, fundust líkamsleifar í flæðamáli fjöru í Vopnafirði sem síðar kom í ljós að tilheyrðu Axel heitnum.
Foreldar Axels höfðuðu mál á hendur Brimi og tryggingafélagi útgerðarinnar, TM, til greiðslu miskabóta. Meðal annars byggðu þeir á því að Axel, sem var ráðinn á bátinn 13 dögum fyrir slysið, hefði ekki verið skráður á öryggisfræðslunámskeið þegar hann hóf störf.