Alþjóðastjórnmálafræðingur segir stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu líklega hafa styrkst vegna sviptinga í alþjóðamálum. Mögulegur sveigjanleiki gagnvart Íslandi í sjávarútvegsmálum gæti fengið Norðmenn og jafnvel Breta til að renna hýru auga til ESB.
Costas Kadis, sjávarútvegsstjóri ESB, sagði í viðtali við Financial Times að sambandið gæti boðið Íslandi undanþágur frá fiskveiðistefnu til að flýta umsóknarferlinu, ef ákveðið verður í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu að hefja aðildarviðræður á ný. Álíka skilaboð hafa komið frá öðrum embættismönnum innan ESB, þar á meðal stækkunarstjóra ESB í viðtali við RÚV.
Þetta gæti gefið til kynna ákveðin straumhvörf varðandi mögulegar aðildarviðræður Íslands, að mati Vilborgar Ásu Guðjónsdóttur alþjóðastjórnmálafræðings.
„Það sem gæti skýrt þau er þessi breytta staða í alþjóðakerfinu. Við horfum á það, fyrst með innrás Rússa í Úkraínu, þessi gjörbreytta utanríkisstefna Bandaríkjanna og ekki síst þessar hótanir gagnvart Grænlandi, sem við upplifðum, og svo aukið vægi Norðurslóða,“ segir Vilborg.
„Þetta spilar allt inn í það að það gæti verið einhver breyting þarna á, hvernig nálgunin verður hvað þessi mál varðar ef við förum aftur í aðildarviðræður.“
Vilborg segir að draga megi þá ályktun að staða Íslands gagnvart ESB sé sterkari vegna sviptinga á alþjóðavettvangi. Hins vegar sé erfitt að átta sig á því hvað það gæti þýtt fyrir mögulegar aðildarviðræður.
„Það er áfram ákveðin óvissa um hvað þetta þýðir nákvæmlega en þetta er breyttur tónn og gefur auknar líkur á að það væri hægt að finna einhvers konar sérlausnir, en hvort þær sérlausnir væru eitthvað sem Íslendingar gætu sætt sig við er algjörlega óljóst.“
Norðmenn stærri biti fyrir ESB
Kadis sagði í viðtalinu við FT að sveigjanleiki varðandi fiskveiðistefnu sambandsins gæti gert það fýsilegri kost fyrir Noreg til að ganga í sambandið. Þá er nefnt í greininni að fiskveiðar séu einnig ásteytingarsteinn í samskiptum Evrópusambandsins og Bretlands, eftir að Bretar gengu úr sambandinu.
Auðvitað er stærri biti að fá Norðmenn inn
„Auðvitað er stærri biti að fá Norðmenn inn, það er augljóst, og ég tala nú ekki um að fá Breta aftur inn,“ segir Vilborg. ESB leitist við að styrkja sínar raðir.
„Að því sögðu þá erum við náttúrulega staðsett á landfræðilega góðum stað þegar kemur að málefnum Norðurslóða. Út frá því erum við líka ákjósanlegt aðildarríki, ef svo má að orði komast.“