„Mér líst vel á það en það er óþægilegt því maður er svo vanur hinu og maður er að fara í 10. bekk, sem er svo mikilvægur,“ segir Kristrún Áróra Eydísar- og Diðriksdóttir, 10. bekk Seljaskóla, um nýja námsmatskerfið sem hefur verið gagnrýnt af kennurum og skólastjórnendum.
„En ég er bara að reyna að komast í menntaskóla og svo lengi sem maður fær fínar einkunnir þá er þetta allt í lagi,“ bætir hún við.
„Ég veit ekki mikið um þetta strax. Við fengum ekki mikla útskýringu á þessu. Ég er svolítið óvön þessu en vonandi verður þetta bara frekar gott,“ segir Freydís Guðjónsdóttir, 10. bekk Seljaskóla.
„Það er óþægilegt að þegar maður er orðinn vanur öðru námskerfi og öðruvísi einkunnum þá er frekar skrítið þegar 10. bekkur skiptir svo miklu máli að breyta því,“ segir Maía Gunnarsdóttir, 10. bekk Seljaskóla.
„Þetta er alveg smá óþægilegt en ekki eitthvað sem hefur mikil áhrif á mann held ég,“ segir Kristrún Áróra jafnframt.
Hefði farið betur á að innleiða breytingarnar næsta haust
„Þetta er auðvitað óþægilegt fyrir kennara og starfsfólk skólanna. Þetta er líka óþægilegt fyrir nemendur og forráðafólk og ég tala nú ekki um krakkana í 10. bekk,“ segir Jóhann Skagfjörð Magnússon skólastjóri Garðaskóla.
„Það hefði verið rosalega fínt að hefja samtal í vetur og hefja svo innleiðingu á nýju námsmati næsta haust,“ segir hann jafnframt.
Þrátt fyrir að skólabyrjun sé kærkomin einkennist upphaf skólaársins af töluverðri óvissu að mati stjórnenda.
Menntamálaráðuneytið hefur tilkynnt að næsta vor eigi að útskrifa 10. bekk með einkunnum í tölustöfum en ekki bókstöfum eins og nú tíðkast.
Útfærslan liggi ekki fyrir fyrr en eftir nokkrar vikur.
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu innleiðir nýja einkunnakerfið og stefnir á að funda með grunnskólum fram í miðjan október.
„Þá verður liðinn rúmlega fjórðungur af skólaárinu. Þegar þú ferð af stað í skólaár viltu að allar forsendur liggi fyrir,“ segir Jóhann Skagfjörð jafnframt.
„Þú vilt vita hvað hver námsþáttur til dæmis á að gilda mikið í hverju fagi, hvernig námsmatið á að vera, það getum við ekki unnið núna, við getum ekki gefið út ítarlegar kennsluáætlanir fyrir árið,“ bætir Jóhann við.
Veit ekki hvort á að gefa bók- eða tölustafaeinkunnir
„Í rauninni á að fara að keyra á einhverju kerfi sem er ekki búið að kynna okkur kennurum sjálfum.
Hvaða áhrif hefur það?
„Það er erfitt að skipuleggja allt skólastarf út frá því. Við þurfum strax í þessari viku að fara að meta verkefni, við vitum ekki enn þá hvort við eigum að gefa einkunnir í bókstöfum eða tölustöfum eða hvernig á að haga seglum varðandi það,“ segir Lárus Helgi Ólafsson, umsjónarkennari í 10. bekk Seljaskóla.