Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur kynnt áform um breytingar á námsmati í grunnskólum sem fela í sér að bókstafaeinkunnir verði lagðar af og tölueinkunnir teknar upp í staðinn. Tillögurnar eru nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.
Samkvæmt áformunum verður skilgreindur sameiginlegur tölukvarði sem notaður verður við lokaeinkunnir í skyldunámi. Gert er ráð fyrir að allar lokaeinkunnir verði settar fram í tölum og að kennurum beri skylda til að nota tölukvarðann við lok 4., 7. og 10. bekkjar.
Markmiðið með breytingunum er samkvæmt ráðuneytinu að gera námsmat skýrara og auðskiljanlegra fyrir bæði nemendur og foreldra, án þess að draga úr faglegu hlutverki kennara eða mikilvægi fjölbreyttra matsaðferða.
Í kynningu ráðuneytisins segir að núverandi umræða um námsmat hafi kallað á endurskoðun á kerfinu og hvort bókstafakerfið þjóni nægilega vel þörfum skólasamfélagsins. Með tölukvarða sé stefnt að auknum sameiginlegum skilningi á stöðu nemenda, námsframvindu og væntingum innan skólakerfisins.
Ráðuneytið telur jafnframt að slík gegnsæi geti styrkt samband milli skóla, foreldra og nemenda og aukið traust á námsmati í grunnskólum.
Nokkrar umsagnir hafa þegar borist um málið og eru skoðanir skiptar, en ráðuneytið segir að allar ábendingar verði teknar til skoðunar áður en endanleg ákvörðun verður tekin.