Lundúnalögreglan reynir nú að fá hinn þýska Christian Bruckner framseldan vegna mannráns og morðs á Madeleine McCann. McCann hvarf í Portúgal fyrir 19 árum síðan.
Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.
Í fréttinni kemur fram að rannsóknarlögreglumenn hjá Lundúnalögreglunni, Scotland Yard, séu nú að reyna að fá Bruckner framseldan frá Þýskalandi. Yrði hann ákærður fyrir mannrán og morð og réttað yfir honum í Bretlandi.
Bruckner hefur lengi verið grunaður í máli McCann, sem var þriggja ára rænt af hótelherbergi í Algarve í Portúgal árið 2007. Bruckner er margdæmdur kynferðisbrotamaður sem var á staðnum og hefur verið dæmdur fyrir aðra glæpi framda í Portúgal.
Sjá einnig:
Hinn grunaði í máli Madeleine McCann gengur nú laus
Vandamálið er hins vegar að samkvæmt þýskum lögum má ekki framselja ríkisborgara út fyrir Evrópusambandið, og eins og flestir vita þá er Bretland ekki lengur hluti af Evrópusambandinu. Er því líklegt að yfirvöld í Þýskalandi myndu einfaldlega hafna beiðni frá Bretum um framsal Bruckner.
Plan B
Lundúnalögreglan er með vara áætlun ef Þjóðverjar vilja ekki framselja Bruckner yfir Ermarsundið. Það er að hann verði þá framseldur til Portúgal og réttað verði yfir honum þar í landi. Myndi lögregla og saksóknari í Bretlandi vinna með portúgölskum yfirvöldum, meðal annars við upplýsingaöflun.
Sagt er að lögreglan leggi sérstaklega mikla áherslu á að leysa málið og rétta yfir Bruckner þar sem málið er að verða 20 ára gamalt og hefur legið á bresku þjóðinni eins og mara allan þennan tíma. Þó svo að litið sé á málið sem mannrán og morð þá er það enn þá formlega skilgreint sem mannshvarf.