Börn bresku fyrirsætunnar og áhrifavaldsins Katie Price táruðust þegar þau ræddu um kókaínnotkun móður sinnar í nýjum heimildarþáttum á Sky sjónvarpsstöðinni. Junior, sem er 21 árs, og Princess, sem er 19 ára, eru börn Price með Peter Andre en þau hættu saman þegar börnin voru ung. Price sneri sér að kókaíni í kjölfar þess. Fjallað er um þættina á vef Mirror.
Börnin táruðust þegar þau opnuðu sig um kókaínnotkun móður sinnar – „Hún var þarna en samt ekki“