Borgar­stjóri fer í saumana á kortafærslunum - Vísir

Borgar­stjóri fer í saumana á kortafærslunum - Vísir

Borgar­stjóri fer í saumana á kortafærslunum - Vísir

Borgarstjóri Reykjavíkur fær eins og aðrir starfsmenn borgarinnar, sem sannanlega þurfa að kaupa inn vörur og/eða þjónustu fyrir Reykjavíkurborg, innkaupakort sem borgin greiðir fyrir.

Samkvæmt reglum borgarinnar um notkun innkaupakorta felur notkun þeirra í sér staðgreiðslu við pöntun á vöru og þjónustu og markmiðið með notkun innkaupakorta sé að einfalda innkaup (án beiðna) á vöru og þjónustu hjá aðilum sem borgin er ekki í reglubundnum umsömdum viðskiptum við, svo sem mat- og sérvöruverslanir og smærri birgjar. Þetta eigi sérstaklega við um smærri innkaup til að spara óhagræði og kostnað af flóknu beiðnaferli. Innkaupakort notist sem ígildi ávísunar og innkaupabeiðna. Innkaupakorti sé meðal annars ætlað að koma í stað smásjóða.

0 krónur, 380 þúsund krónur og 750 þúsund krónur

Fréttastofa hefur fengið kortayfirlit innkaupakorta þeirra þriggja borgarstjóra sem setið hafa á kjörtímabilinu. Á yfirliti fyrir síðustu tæpu tvö ár Dags B. Eggertssonar í embætti má sjá að hann notaði kortið aldrei.

Einar Þorsteinsson, sem tók við embætti borgarstjóra í byrjun árs 2024 og sleit meirihlutasamstarfinu í febrúar árið 2025, greiddi 379 þúsund krónur með kortinu. Á yfirliti notkunar hans má sjá að hann notaði kortið einungis erlendis til þess að greiða fyrir leigubílaferðir og hótelgistingu.

Borgin vilji koma innkaupum í rafrænt ferli

Heiða Björg tók við af Einari þann 21. febrúar í fyrra og lætur af embætti eftir kosningar þann 16. maí næstkomandi. Hún hefur því gengt embætti borgarstjóra í um 14 mánuði. Á þeim tíma hefur hún straujað innkaupakort borgarstjóra fyrir 753 þúsund krónur. Ríkisútvarpið fjallaði um kortafærslurnar í gær.

Í samtali við fréttastofu í gær sagði hún að hún hefði fengið sömu fyrirmæli þegar hún tók við kortinu og forverar hennar í embætti, og raunar allir handhafar innkaupakorta Reykjavíkurborgar, sem væru nokkur hundruð talsins.

Fréttastofa ræddi málið við Heiðu Björgu í löngu máli og í spilaranum hér að neðan má sjá klippt viðtal við hana:

„Það eru skýr fyrirmæli um þau. Maður notar þau til erindagjörða sem maður er í fyrir borgina. Það er mikið eftirlit og mikið utanumhald um þessi kort. Það hefur líka verið stefna borgarinnar að reyna að koma meira af innkaupum inn í rafrænt ferli og hætta beiðnum og reikningasendingum á pappír. Ég fékk góð skilaboð um þetta innkaupakort og hef nýtt það. Þetta er gagnsætt og öruggt ferli hjá borginni.“

Þá sagðist hún ekki kunna skýringar á því hvers vegna Dagur og Einar notuðu kortið ekki í sama mæli og hún. Fréttastofa hefur fengið það staðfest hjá Reykjavíkurborg að engar formlegar breytingar hafi verið gerðar á verklagi varðandi notkun innkaupakorta á kjörtímabilinu.

Rúmlega 300 þúsund krónur í ferð með Höllu

Samkvæmt yfirliti notaði hún kortið fyrst í lok maí þegar hún greiddi 8.834 krónur í sterlingspundum. Tveimur dögum seinna greiddi hún 367 krónur á hóteli í Japan. Heiða Björg fór með í heimsókn Höllu Tómasdóttur forseta Íslands til Japans um mánaðamótin maí/júní í fyrra.

Heiða Björg ásamt forsetahjónunum og tónlistarmönnum á Heimssýningunni í Osaka.Reykjavíkurborg

Aðrar greiðslur sem Heiða Björg greiddi í Japan eru til bókunarfyrirtækisins Expedia, 300 þúsund krónur, og hótels, 20 þúsund krónur. Heiða Björg segir að almennt sé kortið ekki notað til þess að greiða fyrir flugferðir og hótelgistingu en í þessu tilfelli hafi verkfall á flugvelli orðið til þess að ferðaáætlanir röskuðust og kaupa þurfti nýtt far í flýti. Því hafi kortið verið notað til þess en Íslandsstofa hafi á endanum staðið straum af þeim kostnaði.

Næstu færslur eru frá því að Heiða Björg ferðaðist til Nice í Frakklandi í byrjun júní síðastliðins. Þar greiddi hún alls 45 þúsund krónur á þremur veitingastöðum og rétt rúmlega 2.000 krónur á hóteli. 

Hvers vegna notaðir þú kortið þar?

„Vegna þess að þar var ég í erindagjörðum sem borgarstjóri að eiga fundi með aðilum þar. Það var bara skipulagt í dagskránni minni í Nice. Þetta var hafráðstefna Sameinuðu þjóðanna og við áttum góða fundi þar. Það var ákveðið að við borguðum í þessum tilfellum og svo voru aðrir sem borguðu í öðrum tilfellum.“

Fundir með erlendum gestum

Daginn eftir heimkomu frá Nice straujaði Heiða Björg innkaupakort borgarstjóra fyrst á Íslandi. Það gerði hún á veitingastaðnum Hjá Jóni við Austurvöll, þegar hún greiddi 25.400 krónur. Ein önnur færsla er frá Hjá Jóni upp á 25.300 krónur.

Kortið var einnig notað á veitingastöðunum Horninu, Apótek, Jómfrúnni, Cocina Rodriguez í Gerðubergi, Kaffivagninum og Tívolí bistro. Þar greiddi Heiða Björg alls 173 þúsund krónur. Hæsti reikningurinn var á Tívolí bistro, 55 þúsund krónur.

Heiða Björg segir að í öllum tilfellum hafi verið um fundi að ræða, ýmist með erlendum gestum, sigurvegurum samkeppna á vegum borgarinnar eða fulltrúum hverfa í hverfaheimsóknum hennar.

Til að mynda hafi kvöldverðurinn á Tívolí bistro verið með fjármálastjóra Kaupmannahafnar og lögfræðingi innkaupadeildar Kaupmannahafnar. Hún hafi haft með sér fjármálastjóra Reykjavíkur og staðgengil borgarstjóra, til þess að læra af Dönunum.

Reikningur frá Tívolí bistro. Á honum má sjá fjóra stóra bjóra, hvítvínsflösku, tvö freyðivínsglös, fimm aðalrétti, þrjá forrétti og tvær brauðkörfur.

„Þetta var hreinlega eini tíminn sem þau voru laus svo við tókum það yfir kvöldmat. Við erum búin að mynda tengsl við þau og ég vona að þau verði til góðs. Þarna fengum við ókeypis ráðgjöf, borgin, og erum að læra af stóra bróður, Kaupmannahöfn.“

Fékk heimild til áfengiskaupa

Í reglum um notkun innkaupakorta segir að þau skuli ekki notuð til áfengiskaupa, nema að fenginni sérstakri heimild. Á reikningum sem fréttastofa hefur undir höndum má sjá að þegar Heiða Björg bauð út að borða greiddi hún fyrir áfengi í nokkrum tilfellum.

Með reikningunum fylgir þar til gert eyðublað þar sem heimild er fengin fyrir áfengiskaupum.

Eyðublaðið hér að framan er vegna kvöldverðarfundar Heiðu Bjargar með sendinefnd frá Þórshöfn í Færeyjum á Jómfrúnni en fulltrúar Þórshafnar voru heiðursgestir Menningarnætur í fyrra. Á reikningi vegna fundarins má sjá að keyptir voru tveir stórir bjórar og þrjú hvítvínsglös.

Ekki á ferð á nóttunni

Þá eru á yfirlitinu fimm færslur vegna greiðslna til leigubílastöðvanna Hreyfils, City Taxi og Taxi 30 fyrir alls 24 þúsund krónur. Tvær þeirra eru daginn eftir að kort borgarstjóra var straujað á Hjá Jóni og Jómfrúnni, á Menningarnótt.

Heiða Björg er öllu jafna með bílstjóra en hún segir að hann vinni ekki utan dagvinnutíma og því komi fyrir að hún taki leigubíl á kostnað borgarinnar. Hvað varðar ferðirnar tvær sem farnar voru daginn eftir kvöldverðarfundi segir hún ekki svo að hún hafi verið á ferð á nóttunni. Hún muni þó til þess að hafa tekið leigubíl eftir miðnætti á Menningarnótt, enda hafi hún verið í vinnunni í ráðhúsinu eftir að dagskrá næturinnar lauk.

Reykjavíkurborg er með rammasamning við Hreyfil, líkt og fjöldi vinnustaða, og starfsmenn borgarinnar eiga að skrá leigubílaferðir á reikning borgarinnar þar, að því gefnu að þær séu vegna vinnutengdra erinda. 

Samkvæmt reglum borgarinnar um innkaupakort skulu þau ekki notuð í verslunum þar sem rammasamningar eða reikningsviðskipti eru í gildi nema að tryggt sé að umsamdir afslættir nýtist. Heppilegra sé að í þeim tilvikum sé nýtt hefðbundið pöntunar- eða beiðnakerfi

#borgarstjóri #fer #kortafærslunum #saumana #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262879726d/borgarstjori-fer-i-saumana-a-kortafaerslunum

📰 Aðrar fréttir

Upp­ör­vandi fréttir fyrir Demó­krata - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Upp­ör­vandi fréttir fyrir Demó­krata - Vísir
Kosið verður þann 3. nóvember en nú þegar hafa að minnsta kosti 700 þúsund kosið í allavega þrjátíu ríkjum. Gögn segja svipaða sögu og kannanir hafa g...
Upp­sagnir hjá Kletta­bæ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Upp­sagnir hjá Kletta­bæ - Vísir
Þetta segir í skriflegu svari Jóhönnu M. Fleckenstein, framkvæmdastjóra Klettabæjar, við fyrirspurn fréttastofu. Hjá Klettabæ starfa yfir fimm hundruð...
Ingó veðurguð hafði betur í Lands­rétti - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Ingó veðurguð hafði betur í Lands­rétti - Vísir
Landsréttur kvað upp dóm sinn þess efnis klukkan 15 en hann hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu. Ummælin sem...
Krist­rún til­búin í að­gerðir - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Krist­rún til­búin í að­gerðir - Vísir
Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 hefur hingað til verið gert ráð fyrir hækkunum á almennum krónutölugjöldum og gjaldskrám ríkisstofnana um 5,2 prós...
Inga vildi alls ekki svara spurningum frétta­manns - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Inga vildi alls ekki svara spurningum frétta­manns - Vísir
Frá því að Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, steig fram og skilaboð milli hans og fyrrverandi aðstoðarkonu hans vo...
Réttur fólks með þroskahömlun til að taka skaðlegar ákvarðanir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Réttur fólks með þroskahömlun til að taka skaðlegar ákvarðanir
Sonur Ástu Maríu er 26 ára en hann hefur búið í eigin íbúð í þjónustukjarna í 4 ár. Þar nýtur hann aðstoðar starfsfólks en hann er með downs og einhve...
Þorsteinn Pálsson: Að niðurgreiða verðbólgu með gildislausum verðbólgukrónum er eins og að lækna rauða hunda með því að velta sér upp úr hveiti
📅 01.10.2026 👁️ 1
Þorsteinn Pálsson: Að niðurgreiða verðbólgu með gildislausum verðbólgukrónum er eins og að lækna rauða hunda með því að velta sér upp úr hveiti
„Atvinnulífið og verkalýðsfélögin hafa enn á ný myndað ábyrgðarlaust bandalag til að þvinga ríkisstjórnina til að hverfa frá ábyrgri ríkisfjármálastef...
Segja Hafnarfjörð orðinn verri stað fyrir barnafjölskyldur - „Virkilega slæmt“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Segja Hafnarfjörð orðinn verri stað fyrir barnafjölskyldur - „Virkilega slæmt“
Bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar í Hafnarfirði segir að bakslag hafi orðið í stöðu barnafjölskyldna í bænum eftir að meirihlutinn samþykkti að...
Fleiri leigjendur að festast á leigumarkaði
📅 01.10.2026 👁️ 1
Fleiri leigjendur að festast á leigumarkaði
Niðurstöður árlegrar leigumarkaðskönnunar benda til þess að fleiri leigjendur séu að festast á leigumarkaði. Hlutfall leigjenda sem leigir af nauðsyn ...
Ákærður fyrir veiðar í Þverá – Krefjast upptöku á veiðistöng og laxveiðihjóli
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ákærður fyrir veiðar í Þverá – Krefjast upptöku á veiðistöng og laxveiðihjóli
Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur ákært belgískan mann á sextugsaldri fyrir brot á lögum um lax- og silungsveiði. Manninum er gefið að sök að hafa ...
Hörður Arnarson lætur af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hörður Arnarson lætur af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar
Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar, en hann tók við stjórn fyrirtækisins í miðju efnahagshruni árið 2009. Þ...
Dregur fram manneklu á hjúkrunarheimilum
📅 01.10.2026 👁️ 1
Dregur fram manneklu á hjúkrunarheimilum
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður Heilahjálpar, segir það lágmark að bera gjöf sterkra geðlyfja undir aðstandendur fólks með heilabilun.Bæði hún og ...
Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
📅 01.10.2026 👁️ 0
Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Hörð­ur Arn­ar­son læt­ur af störf­um sem for­stjóri Lands­virkj­un­ar. Að­stoð­ar­for­stjóri tek­ur tíma­b...
Af hverju var Christa Pike dæmd til dauða?
📅 01.10.2026 👁️ 0
Af hverju var Christa Pike dæmd til dauða?
Bandarísk kona á dauðadeild fangelsis í Tennessee lifði af tvær aftökutilraunir í gærkvöld. Christa Pike var dæmd til dauða fyrir manndráp fyrir um 30...
Hörður lætur af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hörður lætur af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar
Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar. Hann tók við stjórn fyrirtækisins síðla árs 2009. Landsvirkjun greinir ...
Russia targets busy bridge in central Kyiv in broad daylight
📅 01.10.2026 👁️ 0
Russia targets busy bridge in central Kyiv in broad daylight
The Pivdennyi bridge came under fire as a metro train was travelling across - the first such attack on Kyiv's bridges.
Ráðherra krefst framsals ómansks aðstoðarflugmanns hjá Flydubai sem sakaður er um að hafa reynt að brotlenda vélinni
📅 01.10.2026 👁️ 0
Ráðherra krefst framsals ómansks aðstoðarflugmanns hjá Flydubai sem sakaður er um að hafa reynt að brotlenda vélinni
Ráðherra krefst framsals ómansks aðstoðarflugmanns hjá Flydubai sem sakaður er um að hafa reynt að brotlenda vélinni Fréttin1. október 2026ErlentLeave...
Á­kærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Á­kærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni - Vísir
Í ákæru þess efnis, sem þingfest var á þriðjudaginn, segir að maðurinn sé ákærður fyrir nauðgun, sifjaspell og stórfellt brot í nánu sambandi gegn dót...
Kolefniskrakkarnir aftur komnir á kreik í Hvalfirði
📅 01.10.2026 👁️ 0
Kolefniskrakkarnir aftur komnir á kreik í Hvalfirði
Kolefniskrakkarnir aftur komnir á kreik í Hvalfirði Fréttin1. október 2026Aðsend grein, Júlíus Valsson, LoftslagsmálLeave a Comment Júlíus Valsson skr...
Eiður aug­lýsir tyrk­neska hárígræðsluklíník - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Eiður aug­lýsir tyrk­neska hárígræðsluklíník - Vísir
Auglýsingin birtist á samfélagsmiðlum Dr. Cinik í gær og sýnir frá hárígræðsluferli Eiðs. „Ég er Eiður Guðjohnsen og ég er hér í Istanbúl, [í] klíník ...
Russian dissident Garry Kasparov says US warned him of danger to his life
📅 01.10.2026 👁️ 0
Russian dissident Garry Kasparov says US warned him of danger to his life
"My family and I will not truly be safe as long as Putin is in power," says the former chess world champion.
Gunnar Örn ráðinn sölustjóri Haga miðla
📅 01.10.2026 👁️ 1
Gunnar Örn ráðinn sölustjóri Haga miðla
Gunnar Örn Helgason hefur verið ráðinn sölustjóri Haga miðla, nýrrar rekstrareiningar Haga á sviði smásölumiðlunar. Gunnar býr yfir rúmlega 20 ára rey...
Óhugnanlegt atvik í Laugardal – Unglingur bundinn og skilinn eftir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Óhugnanlegt atvik í Laugardal – Unglingur bundinn og skilinn eftir
Unglingur í Laugardal var bundinn af samnemendum sínum og skilinn eftir í kjallara fjölbýlishúss í september. Límband mun einnig hafa verið sett yfir ...
Fótalaus eftir að læknar fjarlægðu rangan fót - „Það er einfaldlega engin afsökun til“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Fótalaus eftir að læknar fjarlægðu rangan fót - „Það er einfaldlega engin afsökun til“
Bandarísk kona er fótalaus eftir að læknir fjarlægði fyrst rangan fót af henni. Konan krefst hárra skaðabóta.Breska blaðið The Daily Star greinir frá ...
Tæplega helmingur með íþyngjandi leigu þrátt fyrir batnandi stöðu
📅 01.10.2026 👁️ 1
Tæplega helmingur með íþyngjandi leigu þrátt fyrir batnandi stöðu
Horfurnar hjá leigjendum virðast fara batnandi, samkvæmt nýrri leigumarkaðskönnun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Þar kemur fram að leig...
Hungur sverfur að Jemenum
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hungur sverfur að Jemenum
Sífellt fleiri börn í Jemen þjást af vannæringu. Eftir að stríðsátök brutust út á ný hafa 145.000 manns lagt á flótta. Alþjóða heilbrigðisstofnunin va...
Flydubai passenger describes hugging his children as plane nosedived during attack
📅 01.10.2026 👁️ 1
Flydubai passenger describes hugging his children as plane nosedived during attack
Adam Polovincik tells the BBC he told his young children "everything is going to be all right" as flight plunged more than 17,000ft (5,200m).
Væntingar um út­spil tengt gjalda­hækkunum - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Væntingar um út­spil tengt gjalda­hækkunum - Vísir
„Viðsemjendur okkar eru að kalla eftir viðbragði við forsendubrestinum en við  erum á hinn bóginn líka að upplifa forsendubrest þar sem verðmætaauknin...
Allir níu neita sök í Straumsvíkurmálinu
📅 01.10.2026 👁️ 1
Allir níu neita sök í Straumsvíkurmálinu
Allir níu sakborningarnir í Straumsvíkurmálinu neituðu sök við þingfestingu málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Aðeins einn var viðstaddur þingfestin...
Leiðir skilja hjá Hrafn­hildi Helgu og Árna - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Leiðir skilja hjá Hrafn­hildi Helgu og Árna - Vísir
Hrafnhildur staðfesti tíðidin í samtali við Smartland fyrr í dag. Árni og Hrafnhildur hafa verið saman um árabil, gengu í hjónaband júní 2023 og eiga ...
Neituðu sök við þing­festingu Straumsvíkur­málsins - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Neituðu sök við þing­festingu Straumsvíkur­málsins - Vísir
Af karlmönnunum níu eru sex erlendir ríkisborgarar og þrír Íslendingar. Einn ákærðra, Arthur De Araujo Faria, mætti fyrir dómara en hinir átta tóku þá...
Kveður svefnlyfin eftir á­tján ára notkun - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Kveður svefnlyfin eftir á­tján ára notkun - Vísir
Jóhanna Þuríður Þorsteinsdóttir, 81 árs kennari og sjúkraliði, er meðal fjölmargra eldri borgara sem hafa tekið svefnlyf árum saman. Hún hóf notkun þe...
Þor­steinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garða­bænum - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Þor­steinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garða­bænum - Vísir
Þetta kemur  fram í færslu Þorsteins á samfélagsmiðlinum Facebook. Á fasteignavef Vísis má sjá að um er að ræða glæsilegt og mikið endunrnýjað 288,4 f...
Vegir lokast vegna vatnavaxta
📅 01.10.2026 👁️ 1
Vegir lokast vegna vatnavaxta
Rigningar síðustu daga eru farnar að valda skemmdum á vegum á suðaustanverðu landinu.Þórsmerkurvegi var lokað fyrir umferð milli Nauthúsagils og Jökul...
Newborn baby found near Bangor may have been in water for weeks
📅 01.10.2026 👁️ 1
Newborn baby found near Bangor may have been in water for weeks
The body of the baby found along the north Wales shoreline was a girl, a post-mortem has revealed.
Lögreglan hafði betur gegn skipverja Bandero í deilu um farsíma
📅 01.10.2026 👁️ 1
Lögreglan hafði betur gegn skipverja Bandero í deilu um farsíma
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem kröfu skipverja Bandero, um að fá haldlagningu aflétt af farsíma sínum, var hafnað.
Rússar hugðust myrða Kasparov í sumar – „Ég mun hvorki láta staðar numið né fela mig“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Rússar hugðust myrða Kasparov í sumar – „Ég mun hvorki láta staðar numið né fela mig“
Garry Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák, hefur brugðist við fregnum af áætlunum Rússa til þess að ráða hann og fleiri andófsmenn af dögum í s...
Hörður boðar óvænt til starfsmannafundar
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hörður boðar óvænt til starfsmannafundar
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, hefur óvænt boðað til starfsmannafundar hjá fyrirtækinu eftir hádegi í dag. Frá þessu greina Vísir og mbl.i...
Fannst nakinn á látinni 93 ára konu – Súdanskur hælisleitandi gunaður um nauðgun og morð
📅 01.10.2026 👁️ 1
Fannst nakinn á látinni 93 ára konu – Súdanskur hælisleitandi gunaður um nauðgun og morð
34 ára súdanskur flóttamaður hefur verið settur í gæsluvarðhald í Frakklandi, grunaður um að hafa nauðgað og myrt 93 ára konu á heimili hennar í Toulo...
Rannsókn: 44 prósent demókrata sætta sig við ofbeldi til að stöðva Trump
📅 01.10.2026 👁️ 1
Rannsókn: 44 prósent demókrata sætta sig við ofbeldi til að stöðva Trump
Rannsókn: 44 prósent demókrata sætta sig við ofbeldi til að stöðva Trump Fréttin1. október 2026Erlent, TrumpLeave a Comment Fjórðungur bandarískra ful...
New four-stage cycling tour coming to the Canary Islands
📅 01.10.2026 👁️ 1
New four-stage cycling tour coming to the Canary Islands
The Canary Islands will host their first professional international stage cycling race next January, with a new Vuelta Ciclista a Canarias taking plac...
Hörður boðar starfsmannafund hjá Landsvirkjun
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hörður boðar starfsmannafund hjá Landsvirkjun
Boðað hefur verið til starfsmannafundar hjá Landsvirkjun eftir hádegi. Vísir greindi fyrst frá fundinum og sagði að Hörður Arnarson forstjóri hefði bo...
Jagtar Singh Johal: Scot detained in India freed on bail after nine years in prison
📅 01.10.2026 👁️ 1
Jagtar Singh Johal: Scot detained in India freed on bail after nine years in prison
The Sikh activist from Dumbarton was arrested in 2017 in connection with alleged terror offences.
Fjórir grunaðir um að flytja inn fimm kíló af amfetamíni með póstsendingu
📅 01.10.2026 👁️ 1
Fjórir grunaðir um að flytja inn fimm kíló af amfetamíni með póstsendingu
Fjórir karlmenn eru grunaðir um að hafa flutt fimm kíló af amfetamíni til landsins með hraðsendingu frá Þýskalandi. Þrír þeirra voru handteknir í byrj...
„Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri til­viljun“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
„Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri til­viljun“ - Vísir
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar greindi frá málinu í færslu á Facebook og skrifar að kærunefnd útboðsmála hafi úrskurðað útboðið ólöglegt...
Lil Wayne trú­lofaður 03-módeli - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Lil Wayne trú­lofaður 03-módeli - Vísir
Lil Wayne, sem heitir réttu nafni Dwayne Michael Carter Jr., virtist staðfesta trúlofunina í myndbandi sem birtist á Instagram-síðu rapparans B.G.  í ...
Rúmlega 200 nýjar íbúðir í Hafnarfirði staðið tómar í meira en ár
📅 01.10.2026 👁️ 1
Rúmlega 200 nýjar íbúðir í Hafnarfirði staðið tómar í meira en ár
Samkvæmt upplýsingum frá HMS eru alls tæplega 460 nýjar íbúðir til sölu í Hafnarfirði, töluvert fleiri en í Kópavogi, 190, og Garðabæ, 286, en þó ekki...
Góðar og slæmar fréttir í skýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun
📅 01.10.2026 👁️ 1
Góðar og slæmar fréttir í skýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun
Anna Margrét Halldórsdóttir, yfirlæknir á sviði sóttvarnalæknis, segir slæmar og góðar fréttir að finna í ársskýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun á ...
Æskuvinur hins látna sagður hafa skuldað honum milljónir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Æskuvinur hins látna sagður hafa skuldað honum milljónir
Æskuvinur portúgalska mannsins sem fannst látinn á heimili sínu í Kársnesi í Kópavogi í nóvember í fyrra skuldaði honum milljónir vegna fíkniefnaviðsk...
Snið­ganga geti verið túlkuð sem yfir­lýsing ríkis­stjórnarinnar - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Snið­ganga geti verið túlkuð sem yfir­lýsing ríkis­stjórnarinnar - Vísir
Sex af níu stjórnarmönnum beindu því til útvarpsstjóra á fundi í gær að tilkynna Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, að RÚV tæki ekki þátt í Euro...