Borgarráð gerir alvarlegar athugasemdir við að aðeins sé boðið upp á einn stað fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á höfuðborgarsvæðinu. Með því að staðsetja atkvæðagreiðsluna einungis á skrifstofu sýslumanns í Kópavogi er aðgengi kjósenda í Reykjavík og öðrum sveitarfélögum verulega skert, að því er fram kemur í bréfi skrifstofu borgarstjórnar sem lagt var fram á fundi borgarráðs í dag.
Þar hvetur borgarráð sýslumann til að endurskoða þessa ákvörðun og tryggja fleiri kjörstaði í sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins á lokasprettinum fyrir kjördag.
„Bætt aðgengi kjósenda hvetur til aukinnar kosningaþátttöku en minnt er á að kjörsókn í sveitarstjórnarkosningum hefur dregist saman síðustu ár.
Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar 16. maí og utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst 17. apríl. Í byrjun vikunnar höfðu nærri tvöfalt fleiri greitt atkvæði utan kjörfundar en á sama tíma árið 2022.