Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur boðað ríkisstjórn landsins á neyðarfund í dag til að ræða um skógareldana sem geisa nærri borginni Bordeaux í suðvesturhluta landsins.
Eldurinn hélst nokkuð stöðugur í nótt að sögn yfirvalda í Gironde-sýslu.
Búist er við enn einni hitabylgjunni í landinu og hitinn gæti víða farið í 40 stig á morgun. Thomas Cazanave borgarstjóri Bordeaux hefur áhyggjur af því að hún eigi eftir að torvelda slökkvistörf. Hann hefur sagt að ekki sé ráðgert að flytja íbúa borgarinnar á brott vegna eldanna sem eru í um 15 kílómetra fjarlægð frá útjaðri borgarinnar. Íbúar Bordeaux eru um 850 þúsund.
Á fjórða hundrað þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Frakklandi og á Spáni vegna skógareldanna sem þar hafa geisað undanfarna daga.