Blóm er loks orðið löglegt á Íslandi

Blóm í AlþingisgarðiMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur
Mannanafnanefnd hefur veitt tíu nýjum mannanöfnum samþykki og geta þau því bæst við þann hóp nafna sem heimilt er að bera hér á landi. Um er að ræða sex nöfn ætluð körlum, þrjú kvenmannsnöfn og eitt nafn sem skráð er kynhlutlaust.
Úrskurðir nefndarinnar voru kveðnir upp 30. júlí og 12. ágúst.
Karlmannsnöfnin sem fengu samþykki eru Örri, Jean, Lerkir, Húrinn, Herner og Hugríkur. Þá voru kvenmannsnöfnin Rúa, Drangey og Aelía tekin gild, auk Blóm, sem samþykkt var sem kynhlutlaust eiginnafn, og er því orðið löglegt nafn.