Vætusamt verður sunnan- og vestanlands næstu daga, en úrkoman mun að mestu halda sig við þá landshluta. Þó verður að mestu þurrt á Suðurlandi á morgun áður en önnur lægð gengur yfir á fimmtudag. Um helgina er spáð vætu á Vesturlandi en ekki er útlit fyrir stórrigningar.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir breytingar hafa orðið á veðurhringrásinni og að nú sé hafið tímabil þar sem hlýtt loft berst til landsins með sunnan- og suðvestanáttum.
„Vætusöm tíð er að hefjast á Suður- og Vesturlandi. Þegar loftið berst úr suðvestri fylgja gjarnan smálægðir, en um leið hlýrra loft,“ segir Einar.
Hlýjast fyrir austan
Að sögn Einars verður veðrið mun hagstæðara á Norður- og Austurlandi.
„Við eigum von á ágætum hlýindum um helgina í hlémegin fjalla á Norður- og Austurlandi. Með hlýja loftinu fylgir þó nokkur vindur á Norðurlandi og Vestfjörðum, en Austurland sleppur að mestu við hann,“ segir Einar.