Björn Þorláksson, blaðamaður á Samstöðinni, segir að viðtal hans við Margréti Friðriksdóttur í þættinum Rauða borðinu hafi vakið með ólíkindum ólík viðbrögð meðal áhorfenda. Sumir hafi lýst þættinum sem einu besta sjónvarpsefni sem þeir hafi séð um langt skeið, á meðan aðrir hafi gagnrýnt þáttastjórnendur harðlega fyrir að veita sjónarmiðum sem þeir telja umdeild vettvang.
Í færslu sinni á Facebook segir Björn að hann muni ekki eftir að hafa fengið jafn skipt viðbrögð við eigin blaðamennsku.
„Borgaralegir vinir, pönkaðir vinir, alveg ótrúlega margir sem fylgdust með þessu viðtali í beinni sendu skiló og sögðu vinnuna eitt besta sjónvarpsefni sem rekið hefði á fjörur þeirra,“ skrifar hann.
Hann segir jafnframt að aðrir hafi hundskammað hann og þáttastjórnandann Ásdísi Olsen fyrir að leyfa sjónarmiðum sem þeir telji óásættanleg að fá að heyrast.
Segist hafna slaufun og þöggun
Í færslunni leggur Björn sérstaka áherslu á mikilvægi opinnar umræðu og segir að hann taki ekki þátt í því sem hann kallar slaufun einstaklinga eða hópa.
„Ég tek sem blaðamaður ekki þátt í slaufun eða þöggun einstaklinga hvað þá hópa,“ skrifar hann.
Hann segist jafnframt fyrirlíta þá stefnu að fólk tali hvert um annað í stað þess að ræða saman og hafnar þeirri hugmynd að þeir sem séu ósammála eigi aldrei að takast á í opinni umræðu. Björn bendir einnig á að viðtalið hafi varpað ljósi á ýmis mál sem hann telur að eigi eftir að verða umfjöllunarefni síðar.
„Þarna liggja margar ósagðar fréttir sem vert væri að skrifa og ræða,“ segir hann.
Mikill stuðningur við Margréti í athugasemdum
Í athugasemdum undir færslunni lýstu fjölmargir stuðningi við Margréti Friðriksdóttur og viðtalið sjálft.
Margrét þakkaði Birni sérstaklega fyrir að gefa sér vettvang og sagði að slaufun og útskúfun væru andstæðar frjálslyndum gildum.
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir sagði að erfitt væri að horfa upp á hvernig talað væri um Margréti opinberlega og lýsti henni sem bráðskarpri, klárri og skýrri konu sem væri refsað fyrir að verja sig.
Helga Thorberg sagði viðtalið hafa verið svo áhrifamikið að hún þyrfti að hlusta á það aftur og bætti við að hún greiddi tvöfalt áskriftargjald til Samstöðvarinnar til stuðnings miðlinum.
Fleiri lýstu yfir að viðtalið hefði sannfært þá um að gerast áskrifendur að Samstöðinni eða styrkja starfsemi hennar.
Þrátt fyrir jákvæð viðbrögð voru ekki allir á sama máli.
Guðmundur R. Guðmundsson skrifaði stuttlega að Margrét væri „geðveik kona“ og að ekki væri hægt að ræða hennar mál á opinberum vettvangi með rökum.
Hægt er að sjá umræddan þátt í spilaranum hér fyrir neðan.