Bæjarhátíðin Blómstrandi dagar er í fullum gangi í Hveragerði. Stóri ísdagurinn er hluti af hennig og Kjörís býður upp á alls konar íssmakk í dag frá klukkan 11:00–13:30 á Kjörísplaninu í Hveragerði.
Þar verður boðið upp á ís, tónlist og skemmtiatriði fyrir alla fjölskylduna. Aðgangur er ókeypis og allir fá ókeypis ís eins og þeir geta látið ofan í sig.
Í tilkynningu frá Kjörís kemur m.a. fram að fyrirtækið hafi verið einstaklega skapandi í vöruþróun á árinu og nýjungarnar verða í aðalhlutverki. Þar ber meðal annars að nefna Töfraflaugar Lalla, nýjan pakka sem Kjörís og Lalli töframaður hafa skapað saman. Varan sameinar gómsæta afþreyingu og töfrabrögð með það að markmiði að ýta undir sköpunargáfu og samskipti kynslóða.
Furðuísar fyrir þau forvitnu
Furðuísarnir vekja jafnan mikla athygli á Kjörísdeginum. Í ár verða í boði matcha latte-ís, hot honey-ís, bjórís og kæfuís. Tegundirnar gefa gestum kost á að prófa óvænt bragð og veita vöruþróunarteymi Kjöríss verðmæt viðbrögð.
Tónlist og skemmtun
Mikael Kaaber verður kynnir dagsins og Bríet og Svitabandið sjá um tónlistina. Hjalti Úrsus mætir með þrautabrautina sína, Íþróttaálfurinn verður á staðnum og starfsfólk Kjöríss býður gestum að smakka úrval af ís.