Í dag fjarlægist lægðin sem er búin að vera suður af landinu. Það lægir á sunnanverðu landinu þar en vindur verður almennt fremur hægur fyrir norðan. Gera má ráð fyrir austlægri eða breytilegri átt, 3 til 8 metrum á sekúndu en 5 til 13 suðvestan til.
Vænta má lítils háttar vætu á Austfjörðum og Suðausturlandi, en annars björtu og sólríku veðri víða. Hiti víða 12 til 18 stig að deginum en svalara við austurströndina.
Útlit fyrir rólegheitaveður á morgun og fimmtudag, þurrt og milt, en þegar líður á fimmtudag verður orðið skýjað um landið vestanvert og súld gæti fylgt.
Svo er að sjá að það nálgist alldjúpar lægðir með suðlægum áttum með rigningu, mest þó sunnan- og vestanlands. Hlýindin eiga þó að haldast áfram.