Veðrið í dag verður að stórum hluta endurtekning á veðri gærdagsins. Bjart og tiltölulega hlýtt víða en þokusúld eða lítilsháttar rigning norðaustanlands.
Breytinga er að vænta í nótt þegar byrjar að rigna á Suðurlandi. Þegar líður á morgundaginn verður að mestu þurrt norðanlands.
Veðurhorfur á landinu til miðnættis annað kvöld:
Norðaustlæg eða breytileg átt, þrír til tíu metrar á sekúndu. Þokusúld eða lítilsháttar rigning norðaustanlands, annars þurrt að mestu, en líkur á stöku skúrum sunnantil. Bætir í vind og úrkomu syðst í kvöld. Hiti 4 til 15 stig, svalast norðaustanlands.
Víða austlæg eða breytileg átt 5-13 á morgun og rigning eða skúrir, einkum sunnanlands, en súld norðanlands með kvöldinu. Hiti breytist lítið.