Bíll valt utan vegar í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi á ellefta tímanum í dag. Þrír voru um borð í bílnum og voru þeir fluttir á sjúkrahús á Ísafirði til aðhlynningar. Hlynur Snorrason yfirlögregluþjónn segir að ekki sé vitað hversu alvarlegt slysið er. Aðstæður á veginum voru góðar.
Bílvelta í Skötufirði