„Þetta varð smá umferðaróhapp, það var einn sem náði að velta bifreiðinni sinni. Það var sjúkrabíll rétt á eftir honum,“ segir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.Löng bílaröð hefur myndast.Vísir/Atli Hann segir að ökumaðurinn hafi komið sér sjálfur út úr bílnum og ekki talinn alvarlega slasaður. Unnið sé að hreinsun svo búast megi við einhverjum umferðartöfum.